Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir mörgum jólalegum viðburðum á aðventunni. Skógarmenning með notalegri jólastemningu er í forgrunni.
Jólamarkaðurinn í Heiðmörk 2025 verður opinn allar aðventuhelgar, bæði laugardaga og sunnurdaga, milli kl. 12 og 17.
Jólaskógurinn á Hólmsheiði verður opinn seinni aðventuhelgarnar þrjár, milli kl. 11 og 16. Opið er aðventuhelgarnar 6. – 7. desember, 13. – 14. desember og 20. – 21. desember.
Á Lækjartorgi verður hin árlega jólatrjáasala, 12. til 14. og 17. til 22. desember.
Jólamarkaðurinn í Heiðmörk
Jólamarkaðurinn við Elliðavatnsbæ í Heiðmörk er haldinn aðventuhelgar af Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Undanfarin ár hefur verið ríkuleg jólastemming og ánægjulegt að sjá hvernig heimsókn á markaðinn hefur fest sig í sessi sem aðventuhefð hjá mörgum borgarbúum.
Með Jólamarkaðinum vill félagið stuðla að ævintýralegri upplifun í vetrarparadísinni Heiðmörk þar sem fólk getur notið útiveru í skóginum, valið fallegt jólatré og einstakar gjafir á handverksmarkaðnum, og fengið sér kökur og heitt kakó. Félagið selur að sjálfsögðu aðeins íslensk jólatré. Fyrir hvert jólatré sem selst eru 50 gróðursett. Á handverksmarkaðnum er sérstök áhersla lögð á einstakt handverk og innlend matvæli úr náttúrulegum hráefnum.
Barnastund verður í Rjóðrinu, nærri Elliðavatnsbænum, á hverjum opnunardegi markaðarins, klukkan 14. Þar lesa höfundar barnabóka úr verkum sínum. Undanfarin ár hefur oft myndast ævintýraleg skógarstemmning í Rjóðrinu, við varðeld í skjóli trjánna.
Veitingasala er úti í jólakofa og nýristaðar jólamöndlur. Gestir geta valið um að sitja úti, á bekkjum frá Fangaverki, eða tylla sér inn í jólasal Elliðavatnsbæjarins.
Gestum er bent á að klæða sig vel og njóta útivistarsvæðisins í Heiðmörk þegar þeir heimsækja Jólamarkaðinn. Út frá Elliðavatnsbænum er fjöldinn allur af gönguleiðum sem sjá má á korti hér.
Jólamarkaður í Heiðmörk opnar með hátíðlegum hætti laugardaginn 29. nóvember klukkan 12.
-Kór Norðlingaskóla syngur
-Kaffihús Heiðmerkur opnar í jólakjallaranum
-Handverksmarkaðurinn opnar í steinasalnum
-Jólamarkaðstréð verður sýnt með nýju listaverki
Rithöfundar lesa úr nýútkomnum bókum sínum í Rjóðrinu, við varðeld, klukkan 14, bæði laugardag og sunnudag.
Jólatrjáasala – sjálfbærni og vistvæn ræktun
Megnið af jólatrjánum sem Skógræktarfélagið selur, koma úr Heiðmörk og eru falla til sem hluti af nauðsynlegri grisjun og umhirðu skógarins. Öll trén á markaðnum eru íslensk og eru því mun vistvænni en innflutt tré. Kolefnisspor þeirra er margfalt minna en innfluttra trjáa og þau eru ræktuð án skordýraeiturs. Fyrir hvert selt tré eru 50 gróðursett.
Auk jólatrjánna er boðið upp á hin vinsælu tröpputré, greinabúnt og eldivið.
Skógræktarfélagið fagnar fjölbreytileikanum og hefur um árabil boðið upp á Einstök jólatré. Þetta eru tré með mikla sérstöðu og eru í öllum stærðum, gerðum, formum og tegundum. Það er alltaf mikil stemmning að finna einstöku trén fyrir markaðinn og spennandi að sjá hvaða gersemar hafa fundist í skóginum. Margir fastakúnnar koma sérstaklega til að kaupa einstöku tréin og skemmta sér við að velja, oft á tíðum mjög skúlptúrísk tré. Verðskrá fyrir jólatré og tröpputré má nálgast hér.
Jólamarkaðstré
Á hverju ári býður Skógræktarfélagið myndlistarmanni eða hönnuði að skreyta jólamarkaðstréð. Steinn Logi Björnsson myndlistarmaður skreytið jólamarkaðstréð. Steinn Logi sameinar náttúru og trú með viðarskífum úr Heiðmörk og spegilbrotum sem mynda augu Jesú, spegilmynd jólahefðarinnar sem horfir til okkar úr trénu á torgi jólaþorpsins.
Handverksmarkaður
Á handverksmarkaðnum er hægt að finna einstakar jólagjafir unnar af handverksfólki, bændum í matvælavinnslu og listamönnum. Mikið af vörunum eru ekki aðgengilegar í verslunum svo hér gefst einstakt tækifæri til að versla bæði spennandi matvörur og jólagjafir á einum stað. Sérstök áhersla er lögð á vandaðar handunnar vörur úr náttúrulegum efnum, listaverk úr viði svo og innlend matvæli og snyrtivörur.
Handverksmarkaðurinn er staðsettur í fremri og neðri salnum í Elliðavatnsbænum auk þess sem sölukofar eru á torginu við bæinn. Eldsmiður verður að störfum úti við og fleira spennandi að gerast.
Opnunartímar Jólamarkaðsins í Heiðmörk
Jólamarkaðurinn verður í Heiðmörk allar fjórar aðventuhelgarnar, frá klukkan 12:00 til 17:00.
Aðventuhelgar 2025:
- 29. nóvember – 30. nóvember
- 6. – 7. desember
- 13. – 14. desember
- 20. – 21. desember
Jólaskógurinn
Í Jólaskóginum er hægt að höggva eigið jólatré. Þá verða jólasveinar á ferli í skóginum um það bil milli 13 og 14 hvern opnunardag. Hægt er að fá lánaðar sagir á staðnum en við hvetjum gesti til að taka með sér sínar eigin sagir.
Notalegur varðeldur logar við jólakofann í skóginum, þar sem hægt er að kaupa heitt kakó, smákökur og sykurpúða til að grilla yfir eldinum.
Jólaskógurinn er á Hólmsheiði. Sjá hér.
Jólaskógurinn 2025 verður opinn frá klukkan 11:00 til 16:00, aðventuhelgarnar 6. – 7. desember, 13. – 14. desember og
20. – 21. desember.
Jólatrjáasala Lækjartorgi
Vikuna fyrir jól verður jólatrjáasala á Lækjartorgi, líkt og undanfarin ár, í samstarfi við Reykjavíkurborg. Opið verður 2025 sem hér segir:
- 12. desember kl 15:00 – 19:00
- 13.des. kl 14:00 – 18:00
- 14. des. kl 14:00 – 18:00
- 15. des. Lokað
- 16. des. Lokað
- 17. des. kl 15:00 – 19:00
- 18. des. kl 15:00 – 19:00
- 19. des. kl 15:00 – 19:00
- 20. des. kl 14:00 – 18:00
- 21. des. kl 14:00 – 18:00
- 22. des. kl 15:00 – 19:00




