Skemmtileg og falleg jólastemning var á jólaviðburðum félagsins í ár. Það var mjög gaman að sjá hvað margt fólk naut útiverunnar í skóginum og notaði tækifærið til að staldra við og njóta þeirrar róar og friðar sem við finnum í náttúrunni. Á Jólamarkaðnum og í Jólaskóginum var vinsælt að setjast við varðeld sem logaði. Og mörg fengu sér hressingu og tylltu sér inn á Kaffihús Heiðmerkur í Elliðavatnsbænum.
Jólaviðburðir félagsins voru vel sóttir – hvort sem er Jólamarkaðurinn í Heiðmörk, Jólaskógurinn eða jólatrjáasalan á Lækjartorgi. Góð sala var á jólatrjám. Jólatrjáasala er ein af helstu fjáröflunarleiðum félagsins og gerir okkur kleift að leggja meira í starfið — skógrækt, uppbyggingu útivistarinnviða, viðburði, fræðslu og fleira.
Í ár fékk félagið fimm listamenn til að skreyta tré úr Heiðmörk — Jólamarkaðstréð og fjórar sérskreyttar stafafurur. Furan er óðum að vinna sér sess sem íslenska jólatréð, enda „stuttflutt“ og grisjuð á sjálfbæran hátt.
Margir félagsmenn sóttu jólaviðburðina. Félagsmönnum í Skógræktarfélagi Reykjavíkur fjölgaði á aðventunni og hefur reyndar fjölgað talsvert á árinu. Það er mjög gleðilegt. Auk þess að taka þátt í og styðja við starf félagsins, njóta félagsmenn vildarkjara hjá ýmsum fyrirtækjum.
Við þökkum öllum sem komu á jólaviðburði félagsins, sem og handverksfólki, rithöfundum, tónlistarfólki og öðrum sem tóku þátt á einn eða annan hátt.
Takk fyrir að styrkja félagið og taka þátt í að skapa góðar stundir í skóginum!
Skógræktarfélag Reykjavíkur óskar þér og þínum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
