Borgartré 2011
Borgarstjóri kynnir Borgartré 2011 að morgni Menningarnætur laugardag 20. ágúst kl 11 í Hólavallagarði. Þetta er samstarfsverkefni Skógræktarfélagsins og Reykjavíkurborgar -og nú Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma. Á undan og eftir leikur Áshildur Haraldsdóttir á flautu. Lævirkinn á myndinni hér fyrir ofan gefur til kynna hvaða trjátegund varð fyrir valinu.