Átta nýir vegvísar hafa verið settir upp í Esjuhlíðum. Vegvísarnir sýna vegalengdir og einnig hvaða stígar eru einungis ætlaðir gangandi fólki og hvaða stígar eru sérstakir fjallahjólastígar (MTB).
Vegvísarnir voru framleiddir í viðarvinnslu félagsins, úr timbri úr Heiðmörk.
Markvisst hefur verið unnið að því síðustu ár og áratugi að stækka útivistarsvæðin í Esjuhlíðum. Nýir stígar hafa verið lagðir fyrir ólíka útivistarhópa, og lagt upp með að sem flest geti notið fjölbreyttrar náttúru svæðisins. Vegir hafa verið bættir, nýtt bílastæði útbúið við Kollafjarðará, og í fyrra var bílastæðið við Mógilsátt bætt verulega. Þá var einnig nýtt æfingasvæði opnað, Esjugerði.
![Starfsnemar félagsins. Osvaldo Borello frá Ítalíu (v), og Fanny Blode og Amy Pommeraud frá Frakklandi.](https://heidmork.is/wp-content/uploads/2023/08/skilti-2-agustE.jpeg)
![Amy og Fanny setja upp vegvísi.](https://heidmork.is/wp-content/uploads/2023/08/skilti-2-agust-2.jpeg)
![Stígur í Esjuhlíðum](https://heidmork.is/wp-content/uploads/2023/08/esjuhlidar-stigur.jpeg)
![esjuhlidar-audur](https://heidmork.is/wp-content/uploads/2023/08/esjuhlidar-audur.jpeg)
![Útsýnið úr Esjuhlíðum er ekki amalegt.](https://heidmork.is/wp-content/uploads/2023/08/20220629_143819.jpg)
![Esjugerði.](https://heidmork.is/wp-content/uploads/2023/08/Trjabolirnir-i-Esjugerdi-eru-ur-Heidmork.jpg)