Fréttir

Vel heppnuð sumarhátíð við Elliðavatn

Fjöldi gesta, sól og góð stemmning var við Elliðavatn á sumardaginn fyrsta. Á bilinu 150 til 200 gestir mættu á sumarhátíð á vegum SVFR, Veiðikortsins, Skógræktarfélags Reykjavíkur og Veiðifélags Elliðavatns.

Sumardagurinn fyrsti er opnunardagur Elliðavatns og hefur sumargleði verið við vatnið undanfarin ár. En líklega aldrei í jafn góðu veðri og nú.

Veiði gekk vel og komu fyrstu fiskarnir á land upp úr sjö.

Þegar leið á morguninn stóð fræðslunefnd Stangveiðifélags Reykjavíkur fyrir dagskrá fyrir veiðimenn. Fjallað var um lífríki Elliðavatns, mismunandi veiðiaðferðir og sagt frá Heiðmörk.

Eftir veiðikynningu stóð Skógræktarfélagið fyrir skógarþrautum fyrir yngri kynslóðina auk þess sem í boði var að grilla sykurpúða yfir opnum eldi.

Krakkahátíð hófst um tólf með frumsýningu á fræðslumyndbandi um lífríki vatnsins, ætlað börnum. Og var farið í ratleik þar sem leitað var að ýmsum smádýrum sem lifa í Elliðavatni, svo sem lirfum, vatnabobbum og hornsílum. Ratleikurinn vakti mikla lukku. Hægt var að skoða smádýrin í smásjá.

Að lokum fengu gestir grillaðar pylsur þannig að enginn færi svangur heim.

Skrafað um lífríki vatnsins og ágæti mismunandi veiðiaðferða.
Frumsýningargestir í Gamla salnum. Mynd: Ingimundur Bergsson.
Skógarþrautir, meðal annars "dularfulla boxið", þar sem fólk átti að giska hvað væri í körfunni, út frá hvernig það væri viðkomu.
Tvær galvaskar á leið í pödduleit. Mynd: Ingimundur Bergsson.
Vatnadýrin var svo hægt að skoða í smásjá.
Pylsurnar voru kærkomin hressing í lok sumarhátíðarinnar. Mynd: Ingimundur Bergsson.
Vorveiðin fór ágætlega af stað. Mynd: Ingimundur Bergsson.