Við Elliðavatn, skammt frá Þingnesi og Ríkishring, hefur nýr áningarstaður risið þar sem áður stóð gamalt sumarhús. Húsið brann í ársbyrjun 2022. Á grunni hússins hefur verið byggður pallur og bekkur með fallegt umhverfi allt um kring.
Áningarstaðurinn er Torg í biðstöðu og var byggður fyrir styrk frá verkefninu. Áningarstaðurinn var hannaður af Önnu Diljá Sigurðardóttur. Efniviðurinn einkum sitkagreni úr Heiðmörk.
Nýi áningarstaðurinn er við litla vík og upp af henni er falleg slétt flöt, í ágætis skjóli. Víðsýnt er frá pallinum og fallegt um að litast. Umhverfis svæðið eru stæðileg tré og fjölbreytt flóra. Þá hafa nokkrir berjarunnar og reynitré verið gróðursett í nágrenninu.
Áningarstaðurinn býður upp á góða tengingu við vatnið, hvort sem er til að dýfa í það tánum, vaða, fylgjast með fuglalífi eða leggja kajak að pallinum.
Áningarstaðurinn er stutt frá göngustíg og bílastæði.








