Búið er að merkja fjölda merkilegra trjáa í Reykjavík inn í Borgarvefsjá.
Á kortinu er hægt að skoða hvar í borginni trén eru staðsett og fá um þau upplýsingar með því að smella á þau. Meðal trjánna sem hafa verið merkt inn eru þau tré í Reykjavík sem hafa verið útnefnd Tré ársins, Borgartré Reykjavíkur, Hverfistré Reykjavíkur og tré sem fengu sértaka viðurkenningu í tengslum við verkefnið, á síðasta ári.
Skógræktarfélag Reykjavíkur tók saman gögnin og brást Reykjavíkurborg vel við ósk félagsins um að upplýsingarnar yrðu settar inn í Borgarvefsjá.
Við hvetjum fólk til að skoða vefsjána. Það er líka hægt að nota tækifærið og fara um borgina og skoða merk tré í borginni, með hjálp vefsjárinnar. Í leiðinni er líka hægt að skoða önnur áhugaverð fyrirbæri sem merkt eru inn á Reykjavíkurkortið, eins og almenningsgarða eða útilistaverk.



