Það var mikið um að vera útivistarsvæðum Skógræktarfélags Reykjavíkur um helgina. Í Heiðmörk var keppt í Bakgarði Náttúruhlaupa en í Esjuhlíðum efndi fjallahjólafólk til Enduromóts.
Frá laugardagsmorgni til sunnudagskvöld
Mikil þátttaka var í Bakgarðshlaupinu sem var í Heiðmörk í fjórða skipti. Yfir tvö hundruð hlauparar tóku þátt. Fyrirkomulag hlaupsins er þannig að keppendur fá klukkutíma til að ljúka hring sem er 6,7 kílómetra langur. Tíminn sem gefst til hvíldar á milli, fer eftir því hve hratt er lokið við hringinn. Keppt er í því að ljúka sem flestum hringjum.
Marlena Radziszewska fór með sigur af hólmi og hljóp hún 38 hringi. Sem eru um 254,6 kílómetrar. Elísa Kristinsdóttir hljóp 37 hringi og varð í öðru sæti. Flóki Halldórsson varð í þriðja sæti eftir að hafa hlaupið 36 hringi.
Bakgarðshlaupið var ræst klukkan níu á laugardagsmorgun og stóð yfir í rúmlega einn og hálfan sólarhring, eða til klukkan ellefu á sunnudagskvöld.
Brunað um Esjuna
Góð þátttaka var í Enduromótinu í Esjuhlíðum sem hjólreiðafélagið Tindur gekkst fyrir. 69 tóku þátt í mótinu sem fór fram á sunnudeginum.
Keppt í nokkrum flokkum, meðal annars almenningsflokki þar sem ekki var tímataka. Eða eins og aðstandendur orðuðu það: „vonum að allir finni flokk við sitt hæfi og taki þátt í þessari frábæru skemmtun með okkur, og loki þannig geggjuðu fjallahjólasumri 2023!“
Helgi Berg Friðþjófsson bar sigur úr býtum á mótinu. Í öðru sæti varð Börkur Smári Kristinsson. Og Þórir Bjarni Traustason í því þriðja.
Fyrir keppnina var töluverð vinna lögð í hjólaleiðir, grisjun, viðgerð á brú og fleira. Jón Haukur Steingrímsson stýrði þeirri vinnu með hjálp frá sjálfboðaliðum Tinds. Þeim er þakkað kærlega fyrir framlag sitt við að byggja upp útivistarsvæðin í Esjuhlíðum.