Fréttir

Jólamarkaður í Heiðmörk, Jólaskógur og jólatrjáasala á Lækjartorgi

Jólamarkaður, Jólaskógur og jólatrjáasala á Lækjartorgi

Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir fjölbreyttum viðburðum í aðdraganda jólanna þar sem notaleg jólastemning og skógrækt eru í forgrunni. Jólamarkaður verður í Heiðmörk, Jólaskógur á Hólmsheiði og jólatrjáasala á Lækjartorgi.

 

Jólamarkaðurinn í Heiðmörk

Jólamarkaðurinn við Elliðavatnsbæ í Heiðmörk er haldinn allar aðventuhelgar kl. 12-17 af Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Undanfarin ár hefur verið mikil og ljúf jólastemming á markaðnum á aðventunni og ánægjulegt að sjá að heimsókn á markaðinn hefur fest sig í sessi sem aðventuhefð hjá mörgum.

Með Jólamarkaðnum vill félagið stuðla að ævintýralegri upplifun í vetrarparadísinni Heiðmörk þar sem fólk getur notið útiveru í skóginum, valið jólatré, einstakar gjafir á handverksmarkaðnum og fengið sér hressingu. Félagið selur að sjálfsögðu aðeins íslensk jólatré af ýmsum gerðum. Fyrir hvert selt tré eru 50 gróðursett og styðja kaupendur jólatrjáa því við skógrækt með kaupunum. Á handverksmarkaðnum er sérstök áhersla lögð á einstakt handverk og matvæli.

 

Áhersla á upplifun utandyra

Jólamarkaðurinn aðlagar starfsemi sína að gildandi sóttvarnarreglum hverju sinni. Kaffisala verður utandyra og almenn áhersla á útiveru. Við leggjum okkur fram við að skapa sem bestar aðstæður fyrir gesti en viljum benda á að nauðsynlegt er að klæða sig vel. Ævintýraleg stemmning ríkir í Rjóðrinu þar sem varðeldur mun loga þegar rithöfundar lesa kl. 13 og barnabókahöfundar kl. 14. Út frá Elliðavatnsbænum er fjöldinn allur af gönguleiðum sem sjá má á korti inn á heidmork.is og því kjörið að nýta þetta einstaka útivistarsvæði þegar Jólamarkaðurinn er heimsóttur.

Í Heiðmörk má sækja næringu fyrir bæði sál og líkama!

 

Jólatrjáasala – sjálfbærni og vistvæn ræktun

Heiðmörk fagnaði 70 ára afmæli á síðasta ári. Á þessum tíma hefur tekist að skapa ekki bara einstakt útivistarsvæði heldur einnig nytjaskóg. Megnið af jólatrjánum sem seld eru í ár, koma úr Heiðmörk. Öll trén sem boðið er upp á á markaðnum eru íslensk og mun vistvænni en innflutt tré. Kolefnisspor þeirra er margfalt minna en influttra trjáa og þau eru ræktuð án skordýraeiturs.

Auk jólatrjánna er boðið upp á hin sívinsælu tröpputré, greinabúnt og eldivið.

Skógræktarfélagið fagnar fjölbreytileikanum og hefur um árabil boðið upp á Einstök jólatré. Þetta eru tré með mikla sérstöðu og koma í allskonar stærðum, gerðum, formum og tegundum. Það er alltaf mikil stemmning að finna einstöku trén fyrir markaðinn og spennandi að sjá hvaða gersemar er að finna í skóginum. Margir fastakúnnar koma sérstaklega fyrir einstöku trén og skemmta sér við að velja oft á tíðum mjög skúlptúrísk tré. Verðskrá fyrir jólatré og tröpputré má nálgast hér.

 

Jólamarkaðstré

Á hverju ári býður Skógræktarfélagið myndlistarmanni eða hönnuði að skreyta jólamarkaðstréð. Í ár fögnum við því að hönnuðurinn Védís Jónsdóttir mun sjá um að skreyta tréið. Hún er einn fremsti prjónahönnuður landsins og þekkt fyrir einstakt litaskyn og fagurfræði. Fyrir torgtréið hefur Védís sérhannað jólaskraut en efniviðurinn í skrautið eru gamlar ónýtar og óseljanlegar lopapeysur úr fataflokkun Rauða krossins. Afraksturinn verður afhjúpaður á opnun markaðarins laugardaginn 27. nóvember.

 

Rjóðrið – menningardagskrá

Rétt við Elliðavatnsbæinn er Rjóðrið sem er skjólgóður lundur þar sem notalegt er að ylja sér við varðeld og hlusta á rithöfunda lesa úr verkum sínum. Löng hefð er fyrir því að höfundar barnabóka lesi í Rjóðrinu en að þessu sinni verður sú nýbreytni að rithöfundar fullorðinsbóka lesa einnig þar.

Það er notaleg stund að taka með sér heitan drykk, setjast á bekk við varðeld og hlýða á upplestur.

Rithöfundar lesa úr nýútkomnum bókum – kl. 13 í Rjóðrinu alla markaðsdaga.

Barnabókahöfundar lesa úr nýútkomnum bókum – kl. 14 í Rjóðrinu alla markaðsdaga.

 

Handverksmarkaður

Á handverksmarkaðnum er hægt að finna einstakar jólagjafir unnar af handverksfólki, bændum í matvælavinnslu og listamönnum. Mikið af vörunum eru ekki aðgengilegar í verslunum svo hér gefst gott tækifæri til að kaupa bæði spennandi matvörur og jólagjafir á einum stað. Ilmkjarnaolíur úr skóginum, tálgaðir fuglar úr tré, kerti af ýmsum gerðum, gler og keramik, jólakransar og skreytingar, sultur & saft, hangilæri og sauðaostar, te, tréleikföng, keramik, sápur og prjónavara eru á meðal þess sem verður til sölu.

Á handverksmarkaðnum er grímuskylda, greiður aðgangur er að handspritti og tryggt að fjöldatakmarkanir séu virtar.

Það gleður okkur að unnt hafi verið að aðlaga handverksmarkaðinn að samkomutakmörkunum. Rétt er að taka fram að nauðsynlegt getur reynst að bregðast við breyttum reglum um samkomutakmarkanir á aðventunni.

 

Opnunartímar Jólamarkaðarins í Heiðmörk

Jólamarkaðurinn í Heiðmörk við Elliðavatnsbæinn er opinn allar aðventuhelgarnar, frá klukkan 12:00 til 17:00.

Aðventuhelgar 2021:

27.–28. nóvember

4.–5. desember

11.–12. desember

18.–19. desember

 

Jólatrjáasala á Lækjartorgi

Skógræktarfélagið í samstarfi við Reykjavíkurborg mun nú í annað sinn bjóða upp á jólatrjáasölu á Lækjartorgi dagana 18.–23.desember.

Með þessu er verið að auka aðgengi enn frekar að trjánum og verður gerð notaleg stemmning í gróðurhúsinu sem nú er staðsett á Lækjartorgi. Boðið verður upp á jólatré, tröpputré og greinabúnt.

Opið verður helgina 18.–19. desember kl. 14–18 og virku dagana 20.–23. desember frá kl. 16.00–20.00.

 

Jólaskógurinn á Hólmsheiði

Í Jólaskóginum á Hólmsheiði er hægt að höggva eigið jólatré. Gestir geta fengið sagir á staðnum en einnig hvetjum við gesti til að taka með sér eigin sagir.

Leiðarlýsing: Keyrt er út úr borginni austur Suðurlandsveg fram hjá Norðlingaholti og framhjá Heiðmerkur afleggjara. Stuttu seinna er komið að afleggjara á vinstri hönd sem er merktur Nesjavellir, Hafravatn og Hólmsheiði. Sá vegur er keyrður rúma 500 metra þar til komið er að skiltinu Jólaskógur á vinstri hönd, keyrt er þann veg þar til komið er að bílastæði eftir rúma 100 metra. Kort er að finna neðst á þessari síðu.

Verðskrá fyrir jólatré má nálgast hér.

Opið verður í Jólaskóginum eftirtaldar helgar, frá 11:00 til 16:00.

4.–5. desember

11.–12. desember

18.–19. desember

Jólaskógurinn á Hólmsheiði 2021.

QR-kóði sem hægt er að taka mynd af og fá upp staðsetningu Elliðavatnsbæjarins.