Fréttir

Grisjun í Vífilsstaðahlíð — mikið efni í staura, borðvið, kurl og eldivið

Um 225 rúmmetrar voru grisjaðir úr skóginum efst í Vífilsstaðahlíð í lok nóvember. Grisjunin gekk hratt og vel fyrir sig, en að henni kom verktaki á grisjunarvél sem heggur trén, tekur af greinar og sagar bolina í lengdir. Önnur vél var svo notuð til að keyra bolina út. Báðar vélarnar eru á átta hjólum og fara því betur með skógarbotninn.

Skógarumhirða og útivist

Grisjað var á svæði þar sem skógurinn var orðinn ansi þéttur og nauðsynlegt hirða um hann. Bæði til að trén fái meira pláss til að vaxa og um leið verður skógurinn opnari, bjartari og aðgengilegri fyrir útivistargesti. Þarna var gróðursett fyrir um 55 árum.

Verðmætar skógarafurðir

Talsvert féll til af timbri: um 150 rúmmetrar af sitkagreni og 75 af stafafuru. Þessi efniviður er bæði sjálfbær og stuttfluttur og reynum við að framleiða sem mest verðmæti úr honum.

Furan fer að stórum hluta í eldivið en bestu furubolirnir verða flettir og notaðir í timbur.

Grenibolirnir verða að mestu leyti notaðir í bolvið fyrir ýmis verkefni, enda gæðaefni. Hluti efnisins verður flettur í stöðluðum stærðum, þurrkað og boðið til sölu í viðarverslun félagsins í Heiðmörk. Hluti verður einnig sagaður í drumba sem til dæmis eru notaðir í undirstöður, borð og útibeki. Topparnir og lélegustu bolirnir fara í krul, og er þegar búið að afhenda 20 rúmmetra af kurli úr þessari grisjun. Þá verður eitthvað af grennri bolunum notað í stauragerð en félagið fékk nýlega tæki til að barkfletta og auðvelda þannig framleiðslu á girðingastaurum.

Næstu vikur verða starfsmenn félagsins að flytja efni úr timburstæðunum. Við biðjum fólk að fara varlega við stæðurnar og vera ekki að setjast á eða klifra á trjábolunum. Drumbarnir gætu hreyfst og valdið slysum.

Grisjað í Vífilsstaðahlíð í nóvember 2025.
Efni keyrt út úr skóginum.
Grisja þurfti frá leiðum inn í skóginn til að vélarnar kæmust að.