Skógræktarfélag Reykjavíkur er nú að kanna hvort hægt sé að framleiða verðmæti úr lítið eða illa nýttu timbri. Í byrjun ársins fékk félagið styrk úr Aski – mannvirkjasjóði til að rannsaka hvort það sé hægt að framleiða gæðatimbur úr trjám sem eru felld á höfuðborgarsvæðinu.
Mikið timbur fellur til í einkagörðum, almenningsgörðum, kirkjugörðum, á opnum svæðum, byggingarsvæðum og víðar. Oft eru þetta ágætlega stór tré sem mætti nota í verðmætt og sjálfbært byggingarefni. Sem stendur er hráefnið lítið nýtt.
Verið er að kanna hvort það sé fýsilegt að flytja tré sem hafa verið felld í viðarvinnsluna í Heiðmörk, saga úr þeim borðvið, þurrka og nota t.d. í húsgögn.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Trjáprýði sem sér okkur fyrir hluta efnisins; og Tækniskólann. Trésmíðanemendur í Tækniskólanum prófa að smíða úr timbrinu undir handleiðslu kennara, og leggja mat á gæðin ásamt sérfræðingum félagsins.
Timbur getur verið umhverfisvænn valkostur í margskonar framleiðslu og veldur miklu minni kolefnislosun en til dæmis steinsteypa. Sjálfbær skógarumhirða og nýting á efni sem fellur til í skógum, á opnum svæðum og görðum, getur hjálpað til við að hamla gegn loftslagsbreytingum og standa vörð um náttúru og vistkerfi.




