Á döfinni, Fréttir

Fullt út úr húsi á málþingi um framtíð Heiðmerkur

Fullt var út úr dyrum á málþinginu Framtíð Heiðmerkur – aðgengi almennings og vatnsvernd, síðdegis miðvikudaginn 28. maí. Vel yfir 100 manns sóttu málþingið í Norræna húsinu. Auk þess sem fjöldi fólks fylgdist með málþinginu í beinu streymi sem einnig var sent á Vísi.

Meðal fundargesta voru sérfræðingar á sviðum sem tengjast útivist og vatnsvernd, gestir Heiðmerkur, velunnarar og fjöldi borgarfulltrúa.

Fjallað var um málþingið í kvöldfréttum Stöðvar 2, á Mbl.is og í Kastljósi á RÚV. Hægt er að horfa á málþingið í heild hér.

Við vonum að málþingið verði til þess að betur verði hugað að framtíð þessarar ómetanlegu náttúru- og útivistarparadísar, með almannahagsmuni að leiðarljósi