Á döfinni, Fréttir

Framtíð Heiðmerkur

 – aðgengi almennings og vatnsvernd

Skógræktarfélag Reykjavíkur býður til málþings um framtíð Heiðmerkur, miðvikudaginn 28. maí, kl. 17-19, í Norræna húsinu.

Aðgengi almennings að stærstum hluta Heiðmerkur kann að verða takmarkað í framtíðinni. Líkt og fram hefur komið, stefna Veitur að því að loka grannsvæði vatnsverndar fyrir almennri bílaumferð. Grannsvæði vatnsverndar nær yfir meginhluta Heiðmerkur.

Það þýðir að bílastæði við Borgarstjóraplan, Þjóðhátíðarlund, Elliðavatn og víðar gætu horfið — og bílastæði færst út við Suðurlandsveg, t.d. við Rauðhóla eða Búrfellsgjá. Til að komast að elstu og vinsælustu svæðunum í skóginum, svo sem Vígsluflöt og fjölskyldusvæðinu Furulundi, gætu gestir þurft að ganga í 3-4 kílómetra. Í raun væri þá verið að loka Heiðmörk fyrir þorra notenda.

Einnig er áformað að reisa 2,5 metra háa vírgirðingu í kringum 34 hektara svæði við Myllulækjartjörn, sem myndi tvöfalda brunnsvæðið og loka vinsælum gönguleiðum eins og Ríkisstíg frá Elliðavatni.

Takmarkað aðgengi er talið nauðsynlegt af forsvarsmönnum Veitna, til að vernda vatnstökusvæði innan friðlandsins. Skógræktarfélag Reykjavíkur og ýmsir aðrir telja aðrar leiðir betri til að tryggja vatnsvernd. Það sé líka mikilvægt að Heiðmörk verði áfram aðgengileg fyrir þann stóra og fjölbreytta hópa sem notar svæðið, enda felast í því mikil verðmæti. Ekki hefur verið sýnt fram á að núverandi starfsemi eða útivist hafi valdið tjóni. Stórfelld skerðing á aðgengi almennings að náttúru í nafni vatnsverndar kallar á umræðu um meðalhóf, almannarétt og rétt borgarbúa til að njóta þess útivistarsvæðis sem þau hafa sjálf hjálpað til við að móta.

Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir málþingi um framtíð Heiðmerkur miðvikudaginn 28. maí, kl. 17-19, í Norræna húsinu. Sérfræðingar munu segja frá rannsóknum á Heiðmörk, vatnsauðlindinni, innviðum og fleiru. Að loknum erindum verða pallborðsumræður. Fulltrúum Veitna og Orkuveitu Reykjavíkur var boðið að taka þátt í málþinginu en afþökkuðu.

Hægt er að fylgjast með málþinginu í streymi hér: https://vimeo.com/event/5152966 

Þá verður fræðsluganga um Heiðmörk mánudaginn 26. maí, kl. 18, í samstarfi við Landvernd og Ferðafélag Íslands. Gengið verður frá Elliðavatnsbænum og tekur gangan um tvo klukkutíma. Gengið verður að þeim svæðum í Heiðmörk sem fyrirhugað er að girða af og loka. Í göngunni verður rætt um þau verðmæti sem í húfi eru.

Við hvetjum félagsmenn, gesti Heiðmerkur og velunnara til að mæta á málþingið og í fræðslugönguna og láta sig málið varða. Það er mikilvægt að rödd ykkar heyrist.