Fréttir

Brunavarnir í skóglendi

Gróðureldar eru ekki óalgengir á Íslandi, þótt oftast kvikni í mosa eða sinu. Þeir geta þó valdið talsverðum skaða á náttúrunni og jafnvel hættu fyrir fólk. Eftir því sem íslenskir skógar vaxa og dafna, verður líka sífellt mikilvægara að huga að forvörnum og viðbúnaði vegna hættu á bruna í skóglendi.

Á vorin er sérstaklega mikilvægt að vera á varðbergi. Oft er mjög þurrt þegar snjóa hefur leyst en gróður er ennþá ekki farinn að taka við sér. Stundum hefur lítið rignt auk þess sem mikið eldsneyti er í þurrum gróðri frá síðasta sumri. Loftslagsbreytingar og öfgar í verðurfari geta aukið hættuna.

Á þurrum vorum er sérlega mikilvægt að fara varlega með eld, hafa virkt eftirlit með gróðurlendi og vera með nauðsynlegan búnað við hendina, svo sem vatn, eldklöppur og stundum sand. Ef það er sérlega mikil hætta er á gróðureldum, getur þurft að skipuleggja vakt og banna alla meðferð elds.

Til lengri tíma litið er mikilvægt að skipuleggja skóglendi þannig að þar séu brunahólf, flóttaleiðir og auðveld aðkoma fyrir slökkvilið og aðra viðbragðsaðila. Þá þurfa nauðsynleg tæki að vera til staðar, líkt og skjólur, og gott símasamband.

Fjallað var um gróðurelda, forvarnir og viðbúnað í Skógarfróðleik á heimasíðu félagsins árið 2023.

Þá eru gagnlegar upplýsingar um gróðurelda, varnir og viðbúnað á vefsíðunni Gróðureldar.

Tæki til að bregðast hratt við gróðureldum hafa verið sett út á nokkrum stöðum í Heiðmörk. Þarna er eldklappa, skófla, vatnkanna og vatnsbrúsi.