Nú þegar vorið er komið, er fróðlegt að vita hvernig plönturnar dafna sem voru gróðursettar í fyrra. Í Heiðmörk erum við alltaf að reyna að gera skóginn fallegri og ánægjulegri fyrir gesti friðlandsins. Til dæmis með því að fjölga berjarunnum.
Sólberja- og rifsberjarunnar þrífast vel í nágrenni við lúpínu. Enda bindur lúpína nitur sem er nauðsynlegt fyrir góða berjauppskeru. Um þetta og margt fleira tengt berjarunnum má lesa meira hér.
Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur hefur rannsakað eiginleika mismunandi yrkja sólberja. Í fyrra gaf hann félaginu nokkurn fjölda plantna sem voru gróðursettar í lúpínubreiður. Vonandi geta gestir Heiðmerkur notið ávaxtanna áður en langt um líður.


