Margt er hægt að vinna úr grisjunarvið úr Heiðmörk. Meðal annars ýmiskonar bekki. Þeir falla vel inn í umhverfið og eru hentugir svo að gestir geti fengið sér sæti og notið þess sem fyrir augu ber. Loks er hægt að nota þá til að afmarka bílastæði.
Bekkirnir eru allt frá því að vera mjög einfaldir, grófir en fallegir grenibolir, yfir í sérsmíðaða bekki eða bekki með áföstu borði, þar sem það er tilvalið að fá sér sæti og kannski nesti.
Flestir bekkirnir eru úr sitkagreni sem þolir vel að standa úti og veðrast fallega. Starfsmenn félagsins hafa útbúið bekki til að nota í Heiðmörk og líka smíðað bekki eða búið til efni í bekki samkvæmt pöntun.
Í viðarvinnslu Skógræktarfélags Reykjavíkur er unnið að því að búa til sem mest verðmæti úr timbri sem fellur til við nauðsynlega grisjunar skógarins. Hluti skógarins er kominn á þann aldur að hann gefur af sér mikil verðmæti með sjálfbærri nýtingu.
Bekkurinn hér að ofan er við Stelpulund — minningarlundur um Elvu Gestsdóttur, við Elliðavatn. Bekkurinn kemur frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur og er úr ösp. Stelpulundur er skammt frá bílastæðinu við Þingnesveg.












