Fréttir

Ársskýrsla Skógræktarfélags Reykjavíkur 2024

Ársskýrsla Skógræktarfélags Reykjavíkur 2024 er komin út. Í henni er fjallað um starf félagsins á síðasta ári í máli og myndum. Fjallað er um viðburði, fræðslustarf, gróðursetningar, samstarfsverkefni og fleira.

Ársskýrslan er aðgengileg hér á heidmork.is, líkt og ársskýrslur allt aftur til ársins 2004.

Aðalfundur Skógræktarfélags Reykjavíkur er miðvikudaginn 9. apríl, klukkan 18, í Elliðavatnsbænum, Heiðmörk.