Fréttir

Það snjóaði í Esjuna í nótt

net_10_jn_esja_011_002

Svona leit Esjan út klukkan 10 í morgun.  Skýjabakkinn sem lá yfir toppnum horfinn og snjólínan þegar farin  að lyftast.  Þar er vinna hafin við göngustíginn mikla upp á Þverfellshorn. Og Heiðmörkin að fyllast af sumarfólki. Í fyrradag snjóaði reyndar lítillega í Heiðmörkinni, þann snjó tók fljótt upp og nú teljum við, og höfum þar líkindalögmálið með okkur,  að þetta kalda vor sé að baki og framundan sætir, langir sumardagar, -eða eins og skáldið sagði:

 

BRÁÐUM KEMUR BETRI TÍÐ

 

Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,

sæta lánga sumardaga.

 

Þá er gaman að trítla um tún og tölta á eingi,

einkum fyrir únga dreingi.

 

Folöldin þá fara á sprett og fuglinn sýngur,

og kýrnar leika við kvurn sinn fíngur.

 

(HKL 1922)