Fréttir

Skógarleikarnir 2019

Verið velkomin á Skógarleikana sem haldnir verða laugardaginn 6.júlí frá kl. 13.00-17.00 í Heiðmörk. Skógarleikarnir eru nú orðinn árlegur viðburður hjá Skógræktarfélagi Reykjvíkur og stemmningin alltaf einstök.

Að vanda mun fagfólk í skógarhöggi keppa í skógaríþróttum þar sem tekist er á í æsispennandi keppni. Keppt er í hefðbundnum skógarhöggsgreinum svo sem afkvistun trjábola, nákvæmnis fellingu, axarkasti, sporaklifri og bolahöggi.

Samhliða keppninni er ævintýrleg stemmning í lundinum þar sem við drögum fram töfra skógarins á margvíslegan hátt.

Tálgunin hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár þar sem gestir á öllum aldri geta spreytt sig undir handleiðslu Benedikts Axelsonar. Þátttakendum eru kennd undirstöðu atriðin í því hvernig hægt er að tálga úr ferskum við. Orri arboristi og Sebastian Morgenstjerne frá Trjáprýði munu kynna vinnubrögð trjáklifrara á mjög sjónrænan hátt.

Við munum kynnast því hvernig hægt er að vinna skúlptúra úr trjábolum með keðjusög en það er Johan Grønlund sem sýnir listir sýnar. Þess má geta að Johan verður með námskeið í skúlptúrgerð með keðjusög í vikunni eftir Skógarleikana.

Gústaf Jarl Viðarsson, skógfræðingur hjá Skógræktarfélaginu, mun fræða áhugasama um kolefnisbindingu trjáa með fróðlegri leiðsögn um skóginn. Skógurinn geymir einnig mikið af hráefnum til jurtalitunar. Hulda Brynjólfsdóttir mun kynna fyrir gestum hvaða jurtir gefa hvaða lit og hvernig hægt er að nýta þær til litunar. Hún mun vera með litunarlög mallandi í pottum þar sem gestir geta fylgst með ferlinu.

Axarkastið hefur ávallt verið vinsælt og nú höfum við fengið Berserki til liðs við okkur til að leiðbeina gestum í axarkastinu. Berserkir er fyrirtæki sem sérhæfir sig í að kenna fólki undirstöðu atriðin í axarkasti. Skógarleikjatjaldið verður svo reist að vanda og mun seiðkona taka vel á móti gestum og bjóða upp á töfrastund í tjaldinu. Eldsmiðurinn mætir aftur á svæðið og hamrar járnið yfir logandi eldinum, ásamt því að rista ilmandi möndlur.

Það verður að sjálfsögðu grillað snúrubrauð yfir varðeldi og boðið upp á rjúkandi ketilkaffi í lundinum ásamt grillveislu í boði Skógræktarfélagsins.

Hægt er að fylgjast með okkur í undirbúningi á Instagram: skograektarfelagreykjavikur og á Facebook.

Hlökkum til að sjá ykkur,
Skógræktarfélag Reykjavíkur

Frekari upplýsingar veitir Skógarleikjastjórinn Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir: [email protected] eða í síma 690-9874.