Til stendur að stofna minningarlund um fórnarlömbin á Útey í Noregi og í miðborg Osló í fyrrasumar við Norræna húsið, rétt fyrir neðan bílastæði Háskóla Íslands.
Minningarlundurinn verður staðsettur á jaðri friðaða svæðisins í Vatnsmýrinni. Gróðursett verða átta reynitré í hring, sem tákna Norðurlöndin fimm ásamt sjálfsstjórnarhéruðunum þremur (Færeyjar, Álandseyjar og Grænland). Inni í hringnum verða bekkir og minningarsteinn, með áletrun. Í kringum hringinn verður 77 birkitrjám plantað – einu fyrir hvern þann sem missti lífið í árásunum.
Fyrstu birkitrjánum í minningarlundinum verður plantað í dag, kl. 17, af feðginunum Siri Marie Seim Sønstelie og Erik H. Sønstelie, sem komin eru til Íslands til að kynna bók sína „Ég er á lífi, pabbi“, en Siri Marie var í Útey þegar árásin var gerð. Minningarlundurinn verður svo formlega vígður á Menningarnótt í sumar.
Minningarlundurinn er samstarfsverkefni Skógræktarfélags Reykjavíkur, Norræna félagsins, Háskóla Íslands og Norræna hússins.