Vormarkaður félagsins fór vel af stað um helgina, þrátt fyrir lágan lofthita og litið sólskin. Á kaffistofunni runnu vörurnar frá Sólheimum út og nýbökuð kerfilsbrauðin og gulrótarsúpa að hætti hússins nutu mikilla vinsælda. Á myndinni má sjá sýnikennslu á vegum trérennismiða sem var í skjóli austan undir Gamla salnum og vakti verðskuldaða athygli. Sölusýningin sjálf er hins vegar niðri í Gamla sal og má þar sjá margan eigulegan gripinn. Heimasíða félagsins:
Mikið fjölmenni á vormarkaðnum um helgina

10 apr
2015