Fréttir

Litadýrð og aðrir eiginleikar í bötun birkis til nota í skóga og garða

Miðvikudaginn 9. mars sl. hélt Skógræktarfélag Reykjavíkur í samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands fræðslufund þar sem Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur flutti erindið „Litadýrð og aðrir eiginleikar í bötun birkis til nota í skóga og garða“ Það var afar góð mæting gesta eða liðlega 70 manns.

Kynbótastarf liðinna ára hefur skilað tveimur nýjum yrkjum sem nú gagnast í íslenskri trjárækt. Ný verkefni sem byggja m.a. á aðflutningi og erfðaefni úr áður óreyndum tegundum frá Evrópu og Asíu gefa fyrirheit um spennandi árangur varðandi vaxtarþrótt, vaxtarlag og liti á berki og laufi.

Þorsteinn Tómasson fyrrverandi forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðarins hefur látið til sín taka á sviði plöntukynbóta á undanförnum áratugum. Hann hefur meðal annars til margra ára unnið að erfðafræði íslenska birkisins en þekktasta afurð kynbótastarfsins er birkiyrkið ‘Embla‘ sem hefur skilað okkur einstaklega fallegu hvítstofna birki sem hefur breytt viðhorfum í ræktun birkis í skógi og borg. Nýtt og spennandi yrki ‘Kofoed‘ er komið á markað og hvítstofna, rauðblaða birki er í sjónmáli. Meðal nýmæla er tilgáta um áhrif birkifrjós sem berst með loftstraumum til landsins og þátt blendingsþrótts í kynbótastarfinu.