Fréttir

Jólaskógurinn vinsæli opnar á nýjum stað!

Jólaskógurinn verður nú opinn á nýjum stað eða í Grýludal við Hjallabraut (sjá kort).

Þar eru þúsundir glæsilegra jólatrjáa við allra hæfi.  Fyrirkomulagið verður annars það sama og áður:

Opið klukkan 11-16 tvær helgar fyrir jól.

Jólatré að eigin vali, verð 6.000 krónur.

Jólasveinar, kakó, piparkökur og varðeldur.

Tilvalið fyrir fjölskylduna að velja sitt eigið tré og njóta vetrarstemmningar í Heiðmörkinni!