Fréttir

Jólaskógur á Hólmsheiði 2017

Jólaskógur á Hólmsheiði — 2017

Það er orðin sterk hefð í mörgum fjölskyldum að koma í Jólaskóg Skógræktarfélags Reykjavíkur á aðventunni og höggva sitt eigið jólatré. Í ár verður Jólaskógurinn opinn helgarnar 9.-10. desember og 16.-17. desember frá kl. 11-16.

Gestir fá afnot af sög og skógarhöggmennirnir aðstoða við að finna jólatréin og pakka trjánum.

Alla daga verður líf og fjör, jólasveinarnir verða á staðnum og það verður logandi varðeldur. Við verðum með rjúkandi ketilkaffi til sölu, heitt kakó og smákökur. Það er sannkölluð jólastemning í skóginum!

Íslensk jólatré eru vistvæn og sjálfbær. Þau eru ræktuð án eiturefna og eru ekki flutt á milli landa.

Í staðinn fyrir hvert tré sem höggvið er gróðursetur Skógræktarfélag Reykjavíkur 50 plöntur.

Félagsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur fá 15% í afslátt.

Tengiliður Jólaskógar: Gústaf netfang: gustafjarl (hjá) heidmork.is , sími: 856-0059

Leiðarlýsing

Þegar keyrt er eftir Suðurlandsvegi framhjá Olís við Rauðavatn þá er komið að hringtorgi. Keyrt er út úr hringtorginu á þriðja afleggjara, þ.e. afleggjaranum eftir Suðurlandsveg, þar sem stendur Almannadalur. Keyrt er eftir þeim vegi að hesthúsum þar sem beygt er til vinstri upp í dalinn og meðfram Mjóadalsveginum þar til komið er að jólaskógarkofa Skógræktarfélags Reykjavíkur. Á leiðinni verða skilti sem vísa veginn.

MAP1

map2

map3

Smellið á myndina til þess að opna kortið í fullri stærð.