Fréttir

Jólabók skógræktaráhugafólks?

Ný skógræktarbók „ Skógarauðlindin – ræktun, umhirða og nýting er komin út. Bókin hentar skógarbændum og öllum sem áhuga hafa á skógrækt. Bókin er gefin út af verkefninu Kraftmeiri skógi, í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands  og Landssamtök skógareigenda.

Bókin kostar 5.100 krónur, auk sendingarkostnaðar. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands (hér).