Fréttir

Heiðmerkurhlaupið verður um helgina

Laugardaginn 24. september verður Heiðmerkurhlaupið haldið í þriðja sinn – skráning og nánari upplýsingar um fyrirkomulag á www.hlaup.is (sjá hér). Skráningu í hlaupið kl. 12 föstudaginn 23. september.

Boðið er upp á tvær vegalengdir 12 km hlaup um hinn rómaða Ríkishring og 4,7 km skemmtiskokk um Gula hringinn. Eftir hlaupið er boðið upp á kakó og kaffi yfir varðeldi.

  • Kl. 11:00: 12 km – Ríkishringur. Ræst frá Símamannalaut / Borgarstjóraplani. Eftir hlaup verður boðið upp á kakó og kaffi yfir varðeldi.
  • Kl. 13:00: 4,7 km – Guli hringurinn – skemmtiskokk. Ræst frá Símamannalaut / Borgarstjóraplani. Einnig má nýta þessa leið sem gönguleið.
  • Kl. 13:30: Verðlaunaafhending fyrir fyrstu sætin og útdráttarverðlaun frá Fjallakofanum.

Það er Skógræktarfélag Reykjavíkur sem stendur fyrir hlaupinu í samvinnu við Náttúruhlaup og Fjallakofann. Með hlaupinu vill Skógræktarfélagið bjóða fastagestum og nýjum áhugahlaupurum að kynnast stígakerfinu í Heiðmörk og njóta þess að hlaupa í faðmi skógarins. Heiðmerkurhlaupið var fyrst haldið 2020 í tilefni af því að 70 ára voru liðin frá því Heiðmörk var vígð. Hvetjum alla velunnara svæðisins og þá sem áhuga hafa á að kynnast hlaupum í skóginum til að taka þátt í Heiðmerkurhlaupinu!

Keppnisgögn verða afhent í Fjallakofanum Hallarmúla 2, fimmtudaginn 22. september kl. 10-18, frá kl. 9:30 – 10:30 í Elliðavatnsbæ á keppnisdag og föstudaginn 23. september milli kl 13:00 og 17:00.

Athugið: 4 km eru frá Elliðavatnsbænum þar sem keppnisgögn eru afhent og að Borgarstjóraplani/Símamannalaut þar sem hlaupið hefst.

Arnar Pétursson var léttur á fæti í Heiðmerkurhlaupinu 2021, en hann sigraði í hlaupinu um Ríkishringinn.

Það jafnast fátt á við hlaup í skóginum í Heiðmörk í fallegum haustlitum.

Vinningshafar í Heiðmerkurhlaupinu 2021.