Fréttir

Fundur um Græna stíginn

Föstudaginn 3. mars kl. 13-17 efnir Skógræktarfélag Íslands og svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins til fræðslu- og kynningarfundar um Græna stíginn. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Arion banka, Borgartúni 19 í Reykjavík.

Ráðgert er að “Græni stígurinn” verði 50 km langur stígur sem þræði áhugaverðar náttúruperlur og útivistarsvæði í skjóli vaxandi skógerteiga í græna treflinum sem er samfellt útivistarsvæði í upplandi höfuðborgarsvæðisins frá Esjurótum í norðri að Undirhlíðum í suðri. Á stígnum er gert ráð fyrir grænum hliðum á völdum stöðum þar sem aðgengi er gott að upplandinu. Á síðasta aðalfundi Skógræktarfélags Íslands var samþykkt ályktun þess efnis að hvetja sveitarfélög til hrinda af stað framkvæmdum við stíginn í samvinnu við skógræktarfélög og er fundurinn liður í að fylgja þeirri ályktun eftir.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Skráning á fundinn er á netfangið [email protected] og er skráningarfrestur til 1. mars. Taka þarf fram hvort mætt verði á staðinn eða fylgst með í streymi. Sendur verður hlekkur fyrir streymið þegar nær dregur.

Dagskrá fundarins:

13:00–13:05 Setning fundarins – Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands
13:05–13:30 Græni stígurinn – saga, staða – Þráinn Hauksson landslagsarkitekt
13:30–13:50 Lengri ferðaleiðir í svæðisskipulagi – Pawel Bartoszek, formaður svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins
13:50–14:10 Uppbygging stíga á höfuðborgarsvæðinu – Katrín Halldórsdóttir, verkfræðingur, Vegagerðinni
14:10–14:30 Mikilvægi Græna stígsins – Albert Skarphéðinsson, umferðarverkfræðingur
14:30–14:50 Lýðheilsa og Græni stígurinn – Silja Dögg Sigurjónsdóttir, lýðheilsufræðingur
14:50–15:20 Græni stígurinn frá sjónarhóli skógræktarfélaga – Auður Kjartansdóttir, frkstj. Skógræktarfélags Reykjavíkur
15:20–15:30 Ávarp – Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra
15:30–16:00 Kaffihlé
16:00–17:00 Pallborðsumræður – Fulltrúar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ásamt fyrirlesurum