Fréttir

Borgartré 2010

borgartr_2010_fjarlg

Borgarstjóri kynnti val á Borgartré 2010 á Menningarnótt, en frumkvæði að þessu verkefni er komið frá Skógræktarfélaginu.

 

Tréð er af tegundinni silfurreynir (Sorbus intermedia) og er í Víkurgarði á horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis.

 

Georg Schierbeck landlæknir gróðursetti tréð 1884 , en hann  fékk til umráða hinn gamla kirkjugarð Reykvíkinga sem þarna hafi staðið í 800 ár

og hóf tilraunaræktun á trjám, matjurtum og blómum. Garðurinn varð fljótlega fyrirmynd landsmanna í ræktun og  telst Schierbeck einn af frumkvöðlum þjóðarinnar í garðyrkju og skógrækt.

 

Silfurreynirinn er eina tréð í garðinum sem eftir er frá tíð Schierbecks og jafnframt elsta tré borgarinnar.  Lifandi minnismerki  um þennan merka frumkvöðul og þann tíma  þegar garðyrkja og skógrækt voru að komast á legg hér á landi.  Samkvæmt mælingu er hann nú 10,19 m á hæð.

 

Silfurreynir á uppruna sinn að rekja til Suður-Svíþjóðar en er  ræktaður víða um heim og þykir bæði harðgerður og henta vel við umferðaræðar vegna þess hve loftmengun hefur lítil áhrif á hann. Þetta er krónumikð og svipmikið tré náskylt reyniviðnum sem lengi hefur vaxið hér á landi.  Silfurreynirinn  getur náð 200 ára aldri og á því umrætt tré  í Víkurgarði að öllum líkindum eftir að lifa  fram undir næstu aldamót.

 

Verkefnið Borgartré er þannig vaxið að Skógræktarfélag Reykjavíkur og garðyrkjustjóri, fyrir hönd borgarinnar, tilnefna  árlega eitt tré í borgarlandinu.  Tilgangurinn er að vekja athygli á merkilegum trjám sem nauðsynlegt þykir að varðveita og hlúa að í framtíðinni.  Til greina geta komið ,,merkileg” tré af ýmsum ástæðum,  til dæmis vegna sögu sinnar, útlits eða fyrir  að vera sjaldgæfrar  tegundar.  Með tilnefningunni fylgja upplýsingar um sögu viðkomandi trés og nýjar mælingar á því á sama tíma og borgarbúar eru hvattir til að rækta fleiri tré sömu tegundar þar sem við á.

Á myndinni sést ungur maður nýkominn úr kapphlaupi

á Menningarnótt undir hinu 130 ára gamla tré.

borgartr_2010_ungur_-gamalt