Fréttir

Alþjóðlegt ár skóga er runnið upp

Sameinuðu þjóðirnar tileinka árið 2011 skógum að frumkvæði allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Markmið Sameinuðu þjóðanna með því er að auka vitund um sjálfbæra nýtingu, verndun og þróun í öllum gerðum skóglenda.

Sameinuðu þjóðirnar hafa úbúið sérstakt merki ársins sem hefur yfirskriftina Skógar fyrir fólk og á að endurspegla þá fjölþættu umhverfisþjónustu sem skógar veita.

Á alþjóðlegu ári skóga 2011 verða ýmsir viðburðir hér á landi til að vekja athygli á málefnum og mikilvægi skóga og skógræktar.

Upplýsingar um alþjóðlegt ár skóga er að finna á sérstakri vefsíðu Sameinuðu þjóðanna.