Fréttir

Alþjóðleg ráðstefna um líforku á Hallormsstað

Haldin verður alþjóðleg ráðstefna um líforku, PELLETime symposium, dagana 18. – 20. ágúst nk. í íþróttahúsinu á Hallormsstað á Fljótsdalshéraði. Ráðstefnan er hluti af PELLETimeverkefninu sem Héraðs-og Austurlandsskógar ásamt Skógrækt ríkisins á Austurlandi taka þátt í á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins (NPP).  Auk þessara aðila á Íslandi taka stofnanir í Skotlandi, Svíþjóð og Finnlandi þátt, Finnar leiða verkefnið. Ráðstefnan fjallar um líforku, timbur og skyld efni og hvernig við getum nýtt okkar náttúruauðlindir á ábyrgan hátt.  Ráðstefnan mun fara fram á ensku, en fyrirlesarar eru m.a. frá Íslandi, Noregi, Skotlandi, Finnlandi og Svíðþjóð.  Ráðstefnan hefst á hádegi þann 18. ágúst.  Ráðstefnugjöld eru kr. 5.000 og innifalið í því er ráðstefnan, tveir kvöldverðir og skoðunarferð þann 20. ágúst.Nemar greiða engin ráðstefnugjöld. Óskað er eftir að skráningar berist á netfangið; [email protected]  Væntanlegum þátttakendum er bent á gistimöguleika á Hallormsstað sem finna má á slóðinni:http://www.graihundurinn.is/  sími: 471-2400