Heiðmörk
skrvk-banner-virdiheidmerkur.jpg

Eldiviður

eldividur.jpg
byr_logo.gif
 
 
Heiðmörk

Heiðmörk er stærsta útivistarsvæðið í nágrenni höfuðborgarinnar. Svæðið er um 3000 ha að stærð en af því er um 800 ha skógi vaxnir. Heiðmörk er mjög fjölbreytt útivistarsvæði, þar eru göngustígar sem spanna um 40 km og liggja frá Norðlingaholti út að Maríuhellum. Áningastaðir eru nú 9 talsins en þar geta stórir og litlir hópar fólks hist og átt góða stund saman úti í náttúrunni. Sumir áningastaðanna henta vel fyrir lítil fjölskyldumót en aðrir fyrir fleiri hundruð manna veislur.

SMELLTU HÉR TIL AÐ STÆKKA KORTIÐ

Sífellt fleiri gestir sækja svæðið heim á ári hverju en skv könnun Gallup haustið 2005 kom í ljós að 32% Reykvíkinga kemur í Heiðmörk þrisvar eða oftar á ári. Samkvæmt þessu heimsækja um 28.000 Reykvíkingar Heiðmörk mánaðarlega og ef þessar niðurstöður eru yfirfærðar á alla aðra íbúa höfuðborgarsvæðisins  er hægt að leiða að því líkum að um 40-50.000 manns komi á svæðið samtals á mánuði.  Það gera 500.000-600.000 gesti árlega eða um  1.500 manns að jafnaði á dag.  Könnunin staðfestir þannig að Heiðmörk er afar vinsælt útivistarsvæði.  

Saga Heiðmerkur er áhugaverð fyrir margra hluta sakir en hún segir einnig sögu vaxandi byggðarlags í nágrenni svæðisins. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur frá upphafi sinnt svæðinu sem var friðað 1950. Gróðursetning hefur verið í höndum starfsmanna félagsins, fjölmargra landnema en einnig hefur Vinnuskóli Reykjavíkur unnið ómetanlegt starf á svæðinu, en unglingar á þeirra vegum eru þar enn við störf á sumrin. Í dag einbeita starfsmenn sér í auknum mæli að grisjun þó svo að gróðursetning haldi áfram.

 
 
Skógræktarfélag Reykjavíkur   Elliðavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770
www.veflausnir.is