Í Skógræktarfélagi Reykjavíkur eru á annað þúsund félagsmenn. Sem sjálfstætt starfandi áhugamannafélag er Skógræktarfélag Reykjavíkur óháð í starfi sínu við að efla skógrækt, skógarmenningu, fræðslu, uppbyggingu útivistarsvæða og margt fleira.
Starf Skógræktarfélags Reykjavíkur hefur frá upphafi byggt á starfi áhugafólk og sjálfboðaliða. Heiðmörk er þannig að miklu leyti ræktuð upp af landnemahópum; fólki sem kom saman í frítíma sínum til að gróðursetja trjáplöntur fyrir komandi kynslóðir. Og félagið var upphaflega stofnað, árið 1901, af áhugafólki um útivistarsvæði eða friðland í nágrenni borgarinnar. Fólki sem lagði fé og vinnu í skógrækt sem óvíst var að nokkur árangur yrði af. Við njótum í dag ávaxtanna af þessu starfi.
Með aðild sinni og þátttöku gera félagsmenn starf Skógræktarfélags Reykjavíkur mögulegt. Sumt félagsfólk mætir á fjölda viðburða, kemur á Jólamarkaðinn, mætir á aðalfund og tala um tré og skógrækt á öllum mannamótum. Annað styður starfið með því einfaldlega að vera í félaginu og gefa því þannig aukinn kraft.
Heiðursfélagar
Heiðursfélagar í Skógræktarfélagi Reykjavíkur eru
- Alexander Robertson
- Davíð Oddsson
- Holger Hansen
- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
- Ólafur Sigurðsson
- Vigdís Finnbogadóttir
- Þorvaldur S. Þorvaldsson