Tilgangur Skógræktarfélags Reykjavíkur
Tilgangur félagsins er að vinna að skógrækt, trjárækt og landbótum fyrir almenning í Reykjavík og víðar. Vill félagið með því stuðla að bættu samspili og lífsskilyrðum manna, dýra og gróðurs.
Félagið vill ná tilgangi sínum meðal annars með því:
- Að leggja stund á skógrækt og styðja við skógrækt einstaklinga, félaga og fyrirtækja.
- Að veita fræðslu um skógrækt, trjárækt, umhverfis- og loftslagsmál og gildi skóga í náttúrunni.
- Að stuðla að rannsóknum á öllum þáttum skógræktar, runna- og trjátegunda.
- Að starfa með Reykjavíkurborg að ræktun á löndum borgarinnar.
- Að starfa með viðeigandi aðilum á hverjum stað s.s. félögum, einstaklingum og sveitarfélögum að framgangi skógræktar.
- Að hafa umsjón með skógræktar- og útivistarsvæðum.
- Að vera vikur þáttakandi í bindingu kolefnis með skógrækt.
Einstaklingar, félög, stofnanir og fyrirtæki geta orðið félagar.
Gildi félagsins og einkunnarorð
Rækt
- Skógrækt og mannrækt
- Lýðrækt og útivist
- Uppgræðsla
- Uppfræðsla
Umhirða
Sátt og samvinna
- Við umhverfið
- Við önnur sjónarmið
Vandvirkni
Félagsauður
Stefnumótun 2022-2030
Ný stefnumótun félagsins var samþykkt á fundir stjórnar félagsins, 15. desember 2022. Stefnumótunin er aðgengileg hér.