Endurbætur á stígakerfi
Útivistarsvæði Heiðmerkur er í ferli úrbóta og endurskoðunar, kortið hér að neðan sýnir endurbætt skipulag svæðisins eins og það hefur þróast fram til sumarsins 2019. Með uppfærslu á merkingum stígakerfis er leitast við að skapa öruggari upplifun fyrir ókunnuga sem og fyrir fastagesti. Helstu breytingar snúa að merkingum á vinsælustu stígunum. Til að einfalda kerfið hafa verið skipulagðar hringleiðir sem eru merktar með nafni og lit. Til að auðvelda gestum að staðsetja sig í tilfelli óhappa er verið að setja upp merkingar með nákvæmri staðsetningu á mikilvæga pósta og á alla vegvísa. Á þessum merkingum verður númer Neyðarlínunnar og landfræðilegt staðsetningartákn.
Kortið er hnitamerkt. Smellið hér til að opna hnitamerkt kort á PDF-formi í öðrum glugga.
Í neyðartilfellum: hringið í 112
Hringið í 112 til að tilkynna öll slys, alvarleg meiðsli eða mengunaróhöpp á vatnsverndarsvæðinu. Til að auðvelda gestum að staðsetja sig í tilfelli óhappa er verið að setja upp merkingar með nákvæmri staðsetningu á mikilvæga pósta og á alla vegvísa. Flestir innviðir Heiðmerkur, þar á meðal vegvísar og póstar, eru merktir með rauðu neyðarmerki. Hnitin á merkinu hjálpa Neyðarlínunni að staðsetja þig. Merkið vísar einnig til staðsetningar þinnar í hnitakerfi kortsins.