Jólaskógur á Hólmsheiði
Jólaskógurinn er opinn helgarnar 2.-3. desember, 9.-10. desember og 16.-17. desember 2023, frá kl. 11-16.
Það er orðin hefð í mörgum fjölskyldum að koma í Jólaskóg Skógræktarfélags Reykjavíkur á aðventunni og höggva sitt eigið jólatré. Jólaskógurinn á Hólmsheiði verður frá klukkan 11 til 16, helgarnar 2. – 3. desember, 9. – 10. desember og 16. – 17. desember.
Hægt er að fá lánaðar sagir en einnig hvetjum við gesti til að taka með sér sínar eigin sagir.
Það er sannkölluð jólastemmning í skóginum því félagið selur rjúkandi ketilkaffi, heitt kakó og smákökur á staðnum.
Íslensk jólatré eru vistvæn og sjálfbær. Þau eru ræktuð án eiturefna og eru ekki flutt á milli landa og hafa því mun minna kolefnisspor en innflutt tré. Fyrir hvert tré sem höggvið er, gróðursetur Skógræktarfélag Reykjavíkur 50 trjáplöntur.
Félagsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur fá 15% afslátt af jólatrjám.
Verðskrá fyrir jólatré má nálgast hér.
Leiðarlýsing er hér og á myndinni að neðan. Leiðin er einstefna – ekið er í skóginn og svo úr honum annars staðar, í stað þess að snúa við og fara sömu leið til baka.