Skógræktarfélag Reykjavíkur er frjáls félagasamtök. Félagið vinnur að skógrækt, landbótum og uppbyggingu útivistarsvæða, meðal annars í Heiðmörk og Esjuhlíðum. Félagið sinnir einnig fræðslu, skógarmenningu og rannsóknum og nýsköpun í skógrækt og nýtingu skógarafurða.
Með því að ganga í félagið eða styrkja það, styður þú þetta starf.
Styrkja félagið
Skógræktarfélag Reykjavíkur er almannaheillafélag. Fólk og fyrirtæki sem styrkja félagið geta styrkt félagið með frjálsum framlögum og fengið á móti frádrátt frá skatti.
Reikningsnúmer: 0301-26-004040
Kennitala: 600269-4539
Tilvísun: styrkur
Gerast félagi
Félagsmenn fá aðgang að námskeiðum og viðburðum félagsins, oftast án endurgjalds, og 15% afslátt af vörum Skógræktarfélags Reykjavíkur, svo sem jólatrjám, eldivið, kurli og borðviði. Félagsmenn njóta jafnfram vildarkjara hjá ýmsum fyrirtækjum. Árlega er sendur út greiðsluseðill til félagsmanna, að upphæð 5.000 kr. árið 2025.


Skráning og rafræn skírteini
Nýir félagsmenn sem skrá í formið hér að ofan, fá senda kröfu í heimabanka fyrir félagsgjaldi. Þegar krafan hefur verið greidd er sendur tölvupóstur frá passi(hjá)passi.is með tengli á rafrænt skírteini. Berist tölvupósturinn ekki, eru félagsmenn beðnir um að hafa samband á heidmork(hjá)heidmork.is og tilgreina rétt netfang.
Til að sækja og nota stafræna skírteinið þarf veskis-forrit. Í Iphone símum er það Apple Wallet. Fyrir Android síma þarf að sækja forrit, til dæmis SmartWallet. Því næst er smellt á tengil í tölvupóstinum.
Eftirtalin fyrirtæki veita staðgreiðsluafslátt gegn framvísun félagsskírteinis:
- 66°N 10%
- Blómaval 10%
- Fjallakofinn 10%
- Flóra garðyrkjustöð 10%
- Garðheimar (almennar vörur) 10%
- Gróðrarstöðin Mörk 10%
- Gróðrarstöðin Réttarhóll (plöntur) 10%
- Gróðrarstöðin Þöll 15%
- Húsasmiðjan 10%
- Ilmbjörkin garðyrkjustöð 10%
- MHG verslun 15%
- Nátthagi garðplöntustöð 10%
- Ræktunarstöðin Lágafelli 10%
- Skógræktin Ölur á Sólheimum 15%
- Sólskógar (plöntur) 10%
- Vorverk (Cramer rafhlöðutæki) 15%