Múlastaðir í Flókadal er 650 hektara jörð sem Skógræktarfélag Reykjavíkur festi kaup á árið 2014. Jörðin er fyrsta eignarland félagsins. Þegar hefur verið gróðursett á 153 hekturum.

Íbúðarhúsið að Múlastöðum er líklega frá því um 1960. Ástand þess var bágborið en það hefur nú verið gert upp að utan sem innan. Viður úr Heiðmörk var notaður meðal annars í klæðningu utanhúss og parkett innandyra. Þá er þar einnig borð úr lerki, rugguhestur og leikföng úr efniviði skógarins. Heiður að hönnun hússins eiga Júlía Andersen innanhúsarkitekt og Sara Riel myndlistarmaður. Húsið hefur verið leigt Kennarasambandi Íslands undanfarin sumur.

Upplýsingar um húsið og myndir innan úr því eru í þessum bæklingi. Upplýsingar um útleigu og verð eru ekki lengur í gildi.

Á Múlastöðum voru einnig útihús sem hefur verið breytt í skemmu og aðstöðu fyrir starfsmenn. Með lagfæringunum er komin góð aðstaða fyrir starfsemi félagsins og nýtingu jarðarinnar til skógræktar og skyldrar starfsemi.

Skóglendi er að verða til að Múlastöðum. Hér er hoft út hlíðinni í átt að bænum og heimatúnunum.
Það var mikið verk og kosnaðarsamt að girða jörðina til að verja trjáplöntur fyrir ágangi sauðfjár. Girðingarnar eru um 11 kílómetra langar.
Múlastaðir að vetrarlagi.
Íbúðarhúsið hefur verið gert upp að utan sem innan. Gólffjalirnar og fleira eru unnin úr viði úr Heiðmörk.
Gróðursett að Múlastöðum 2016.