Jólaskógur á Hólmsheiði

Jólaskógurinn er opinn helgarnar 8.–9. desember, 14.–15. desember og 21–22. desember 2024, frá kl. 11-16.

Það er orðin hefð í mörgum fjölskyldum að koma í Jólaskóg Skógræktarfélags Reykjavíkur á aðventunni og höggva sitt eigið jólatré. Jólaskógurinn á Hólmsheiði verður opinn þrjár síðstu helgarnar fyrir jól, frá klukkan 11 til 16.

Þetta eru helgarnar

  •  7. – 8. desember, kl. 11–16
  • 14. – 15. desember, kl. 11–16
  • 21. – 22. desember, kl. 11–16

 

Hægt er að fá lánaðar sagir en einnig hvetjum við gesti til að taka með sér sínar eigin sagir.

Það er sannkölluð jólastemmning í skóginum því félagið selur rjúkandi ketilkaffi, heitt kakó og smákökur á staðnum.

Íslensk jólatré eru vistvæn og sjálfbær. Þau eru ræktuð án eiturefna og eru ekki flutt á milli landa og hafa því mun minna kolefnisspor en innflutt tré. Fyrir hvert tré sem höggvið er, gróðursetur Skógræktarfélag Reykjavíkur 50 trjáplöntur.

Félagsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur fá 15% afslátt af jólatrjám.

Staðsetning verður auglýst og sett inn hér á síðunni þegar hún liggur fyrir.

Jólamarkaðurinn í Heiðmörk verður svo opinn allar aðventuhelgarnar, frá 12 til 17. Þá verður félagið með jólatrjáasölu og jólastemmningu á Lækjartorgi rétt fyrir jól, líkt og síðustu ár.