Í Heiðmörk er góð aðstaða til viðarvinnslu og býr Skógræktarfélag Reykjavíkur meðal annars yfir vandaðri flettisög. Starfsmenn félagsins vinna ýmsar afurðir úr því timbri sem fellur til í skóginum, allt frá eldiviði til fánastanga. Starfsmenn eru jafnframt boðnir og búnir að verða við sérstökum óskum fólks og er fólk hvatt til að senda fyrirspurn hér að neðan. Viðarafurðir eru að öllu jöfnu afhentar á starfsstöð félagsins að Heimaási í Heiðmörk, steinsnar frá Elliðavatnsbænum. Afhending fer fram eftir samkomulagi.
Tekið er við fyrirspurnum og pöntunum á netfanginu sala (hjá) heidmork.is og í síma 893-2655.