Heiðmörk
skrvk-banner-virdiheidmerkur.jpg

Eldiviður

eldividur.jpg
byr_logo.gif
 
 
Alþjóðleg ráðstefna um líforku á Hallormsstað
föstudagur, 14 ágúst 2009
Haldin verður alþjóðleg ráðstefna um líforku, PELLETime symposium, dagana 18. - 20. ágúst nk. í íþróttahúsinu á Hallormsstað á Fljótsdalshéraði. Ráðstefnan er hluti af PELLETimeverkefninu sem Héraðs-og Austurlandsskógar ásamt Skógrækt ríkisins á Austurlandi taka þátt í á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins (NPP).  Auk þessara aðila á Íslandi taka stofnanir í Skotlandi, Svíþjóð og Finnlandi þátt, Finnar leiða verkefnið. Ráðstefnan fjallar um líforku, timbur og skyld efni og hvernig við getum nýtt okkar náttúruauðlindir á ábyrgan hátt.  Ráðstefnan mun fara fram á ensku, en fyrirlesarar eru m.a. frá Íslandi, Noregi, Skotlandi, Finnlandi og Svíðþjóð.  Ráðstefnan hefst á hádegi þann 18. ágúst.  Ráðstefnugjöld eru kr. 5.000 og innifalið í því er ráðstefnan, tveir kvöldverðir og skoðunarferð þann 20. ágúst.Nemar greiða engin ráðstefnugjöld. Óskað er eftir að skráningar berist á netfangið; Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   Væntanlegum þátttakendum er bent á gistimöguleika á Hallormsstað sem finna má á slóðinni:http://www.graihundurinn.is/  sími: 471-2400
 
Xerox gróðursetur í Esju
miðvikudagur, 12 ágúst 2009

xerox.jpgStarfsfólk útibús  Xerox í Kanada var hér fyrir skömmu í ævintýraferð og gróðursetti meðal annars tré í Esjunni, var  myndin hér fyrir ofan  tekin við það tækifæri. Skógræktarfélagið kann þeim Xerox mönnum bestu þakkir  fyrir hjálpina.

 
Skógarstígar í Esjuhlíðum
laugardagur, 08 ágúst 2009

skgarstgar_esjunnar_09.jpgBergþóra Einarsdóttir  flokksstjóri og hennar fólk hefur unnið að gerð og viðhaldi skógarstíga í Esjunni í sumar, bæði í birkiskóginum ofan við bílastæðið við Kollafjörð og einnig í barrskóginum undir Kögunarhóli.

 
Skátafélagið Svanir í Hjalladal
fimmtudagur, 23 júlí 2009

sktamt_jl_09.jpgAlgengt er að útilífshópar gisti í Hjalladalnum. Um miðjan júlí voru skátar úr Svönum á Álftanesi að taka saman föggur sínar þegar ljósmyndari heimasíðunnar átti leið framhjá. Voru þetta 6-10 ára svanir með foringjum sínum sem höfðu hjólað úr Garðabænum og gist eina nótt í blíðskaparveðri í Heiðmörk.sktamtshpur_jl_09.jpg

 
200 manns að störfum á vegum Skógræktarfélagsins
fimmtudagur, 23 júlí 2009

jl_09_atv_tak_ofl_004.jpgUnglingar í atvinnuátakshópi Benediktu slaka á í hádeginu við Hjallabraut eftir að hafa sporðrennt nokkrum pitsum þann 24. júlí síðastliðinn. Hópur Benediktu vinnur við stígagerð fyrir gönguskíðafólk og  er einn fjögurra átakshópa á vegum Skógræktarfélagsins í sumar. Stígagerðinni miðar vel og má sjá hann hægra megin á myndinni. Tveir hópar eru líka að störfum í Esju, alls um 50 unglingar. Þar eru nýir skógarstígar að líta dagsins ljós ofan við bílastæðið við Kollafjörð og á Réttarholti við Kollafjarðarrétt hafa tugir þúsunda trjáa verið gróðursett. -Auk þessara 50  eru fastir starfsmenn félagsins 5. Vinnuskóli borgarinnar hefur sent um 70 unglinga í Heiðmörk og er það fjölgun frá undanförnum árum. Landvirkjunarunglingar  í Heiðmörk eru 22. Átakshópar frá Garðabæ við stígagerð í Vífilsstaðahlíð samtals um 40. 10 manna hópur sjálfboðaliða frá British volunteers hefur unnið við stígagerð í Esju og er von á þeim aftur seinna í sumar. Þá sér Skógræktarfélagið um gróðursetningu í Úlfarsfelli og er það hluti af Grænu skrefum Reykjavíkurborgar, þar eru 4 og fer fjölgandi.

Samtals eru því um 200 manns að störfum á vegum Skógræktarfélagsins nú í sumar og starfsemin því töluvert umsvifamikil.

 

 
Vinsæla viðarkurlið komið aftur!
miðvikudagur, 15 júlí 2009

http://heidmork.is/index.php?option=com_content&task=view&id=152&Itemid=80

 
Gullkollurinn í Kollafirði
föstudagur, 10 júlí 2009

gullkollur_jl_09.jpgSkógarkerfillinn er nú minna áberandi í Esjunni enda fræmyndun hafin á fullu hjá honum.  Gullkollurinn er aftur á móti víða áberandi í hlíðunum og ekki síður niður á Kollafjarðareyrum þar sem  haldnir  voru leikar á tímum Kolla landnámsmanns, en seinna grafnar út fiskeldistjarnir. Þar var meðfylgjandi mynd tekin á dögunum. Gullkollurinn er af ertublómaættinni og þar með frændi gullregnsins, lúpínunnar og fleiri merkisplanta.  Frekari upplýsingar:  http://www.floraislands.is/anthyvul.htm   Til gamans má geta að pínulítill fugl með sama nafni hefur verið að setjast að hér á landi á undanförnum árum og hefur meðal annars sést í Trjásafninu  á Mógilsá. Hér eru myndir af gullkollunum:  http://is.wiktionary.org/wiki/gullkollur

 
Undirbúningur fyrir Laugavegshlaup
miðvikudagur, 08 júlí 2009

jl_09_-hlauparar.jpgTíðindamaður heimasíðunnar rakst á þessa hlaupagarpa við Strípsveg  á dögunum, en þá náði undirbúningur þeirra hámarki fyrir komandi Laugavegshlaup. Þjálfari hópsins er hinn þekkti hlaupari Sigurður P. Sigmundsson og sést hann bjóða aðvífandi hlaupurum ,,líkjör" við bíl sinn í vegkantinum. Þennan dag hafði rignt dálítið og því engin þörf að kvarta yfir svifryki í Heiðmörkinni, hlaupararnir lýstu þvert á móti yfir mikilli ánægju með Heiðmerkuræfinguna og hina fjölmörgu vegi og stíga sem hægt er að hlaupa eftir á okkar stóra útivistarsvæði.  Heimasíða hópsins: http://hlaup.is/

 
Nýir landnemar
laugardagur, 04 júlí 2009

filipseyjalandnemar_jl_09.jpgLandnemahópar  í Heiðmörk eru  vel á annað hundrað og má segja að landnemastarfið sé óslitinn –og mikilvægur- þráður í starfi Skógræktarfélagsins alveg frá því Heiðmörk var opnuð árið 1950.

Um landnemastarfið almennt er hægt að fræðast hér:

 http://heidmork.is/index.php?option=com_content&task=view&id=49&Itemid=50

 

En á  myndinni  fyrir ofan má sjá Ronald Fatalla formann Filipinsk-íslenska félagsins þegar hann mætti til gróðursetninga 4. júlí  í nýjum reit félagsins ásamt fjölskyldu sinni, Steinunni Marie og Ethani Rafni, þriggja ára.  Á neðri myndinni sést svo gróðursetningarhópurinn.  Skógræktarfélagið býður félagið velkomið í Heiðmörk og fagnar öllum sem leggja hönd á plóg í  skógræktinni.

Heimasíða nýju landnemanna: http://fi-com.org/news.php

hpur_filp-sl_4_jl__09.jpg

 
Hestamenn í Heiðmörk
fimmtudagur, 02 júlí 2009
hestanmskei_jl_09.jpgHeiðmörkin er vinsæl hjá hestamönnum, fjöldi stíga og áningarstaða liggja um Mörkina og á hverju sumri kemur mikill fjöldi hestamanna í útreiðatúrum til okkar. Þá er líka vinsælt að hópar  á reiðnámskeiðum nýti sér aðstöðuna. Á meðfylgjandi mynd má sjá Emblu á hestinum Kol og í baksýn lúinn knapa í hvíldarstöðu,  þau voru í hópi frá Topphestum í Garðabæ á ferð  umhverfis Elliðavatnið fyrir skömmu.
 
Fastagestir við vatnið
mánudagur, 29 júní 2009
alois_jn_09.jpgStór hópur veiðimanna kemur aftur og aftur á hverju ári til veiða í Elliðavatni og má segja að fyrir suma sé vatnið  þeirra annað heimili á sumrin.  Þeir eru mjög vakandi yfir lífríkinu og hljóta að teljast með  bestu vörslumönnum Heiðmerkurinnar.  Einn af fastagestunum er Alois, sem ættaður er frá Austurríki og byrjaði hann að veiða í vatninu 1972 eða  fyrir 37 árum síðan.  Alois notar alltaf flugu með flotholti og er  kallaður Kúluvarparinn af félögum sínum á vatnsbakkanum.  Á myndinni sést Alois  í fullum herklæðum undir brúnni með tveimur öðrum veiðimönnum  í dumbungsveðri þann 25. júní síðastliðinn.
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 73 - 84 af 144
 
Skógræktarfélag Reykjavíkur   Elliðavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770
www.veflausnir.is