Heiðmörk
skrvk-banner-virdiheidmerkur.jpg

Eldiviður

eldividur.jpg
byr_logo.gif
 
 
Rauðberjalyngið í Rauðavatnsstöðinni
þriðjudagur, 13 október 2009

rauberjalyng__rauvatnsstinni.jpgSkógræktarfélagið rekur upphaf starfsemi sinnar  til Rauðvatnsstöðvarinnar í byrjun 20.aldar. Ein þeirra plantna sem frumherjarnir  eru taldir hafa flutt í Stöðina er rauðberjalyngið. Tíðindamaður heimsíðunnar tók myndina hér fyrir ofan í september þar sem lyngið dafnar vel og dreifir úr sér í nokkuð þéttum barrskógi. Frekari  upplýsingar:

http://floraislands.is/blomaval.htm

http://www.timarit.is/view_page_init.jsp?issId=290274&pageId=4258210&lang=is&q=Rauðberjalyng

 
Vetrarlegt í Heiðmörk
þriðjudagur, 06 október 2009
okt_09_-2-lerki_ofl.jpgokt_09_-9-.jpg
 
Haustkransar á Elliðavatni
föstudagur, 25 september 2009

reyniber_okt_08.jpgLærðu að binda þinn eigin haustkrans á útidyrahurðina eða stofuborðið úr reyniberjum, lyngi, mosa eða öðrum efnum!

Auður Árnadóttir blómaskreytir heldur námskeið á Elliðavatni í samstarfi við Skógræktarfélagið mánudag  5. október  klukkan 19-22. Allir velkomnir! 

Verð: 5000 kr. Efni innifalið en ef þátttakendur vilja koma með reyniber eða annað efni er það velkomið. Vinsamlega koma með litlar garðklippur ef þið eigið. Skráning hjá Ástu í síma 8448588 eða Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það haustkrans.jpg

 

 
Ráðstefnugestir skoða Heiðmörk
mánudagur, 21 september 2009
heimrk-hpur19092009-3.jpgRáðstefna um borgarskógrækt var sem kunnugt er haldin í síðustu viku. Á myndinni sést hluti ráðstefnugesta í skoðunarferð um reit Ferðafélagsins í Heiðmörk þar sem hið mikla og samfellda starf landnemanna vakti verðskuldaða athygli gestanna. Ljósmyndari: Ragnhildur Freysteinsdóttir
 
Áhugaverð ráðstefna framundan
fimmtudagur, 10 september 2009
Ráðstefna: Skógar efla lýðheilsu fólks í þéttbýli
 
Dagana 16.-19. september 2009 verður haldin alþjóðleg ráðstefna um hlutverk skóga og skógræktar fyrir þéttbýli, með sérstakri áherslu á löndin við norðanvert Atlantshafið. Flest landanna eru, eins og Ísland, mjög borgvædd og því skipta skógar og önnur græn svæði í borgum miklu máli fyrir útivistarmöguleika íbúanna. Rannsóknir hafa sýnt fram á margvísleg jákvæð áhrif útivistar í skógi á lýðheilsu og velferð, þar sem skógar fullnægja ýmsum menntunar-, menningar-, og félagslegum þörfum fólks.
Ráðstefnan er haldin er í tengslum við formennskuár Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Skipuleggjendur eru Norrænn samstarfshópur um rannsóknir á útivistargildi skóga (CARe-FOR-US; http://www.sl.life.ku.dk/care-for-us), Skógrækt ríkisins og Skógræktarfélag Íslands. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér.  Og einnig: http://skogur.is/Pages/19?NewsID=1365
 
Birkitilraun í 500 metra hæð í Esju
mánudagur, 07 september 2009

einarsmrarbirki_g_09.jpgÍ Einarsmýri undir Þverfellshorni í Esju voru gróðursett 200 birkitré í júní í fyrra  úr 67 g. bökkum. Er það í um 500 metra hæð og  efsti tilraunastaðurinn í hlíðinni. Meðfylgjandi mynd var tekin 26.ágúst síðastliðinn og sýnir eitt birkitréð  í  góðu ásigkomulagi og epli til hliðsjónar.   Þarna mun vera   um  þriggja stiga  lægri meðalhiti  en neðst  í fjallinu  eða um níu stig á Celcius á sumrin, en mýrin er þar á móti  frjósöm hallamýri,  þykkur jarðvegur, fjölbreyttur gróður  og nægur raki og líklega skjólbetra en víða annars staðar í hlíðinni. Nokkrar plöntur hafa  greinilega kalið og  aðrar  verið bitnar af kindum,  sem eiga það til að rása  inn í friðlandið þegar líður á sumarið. En það stefnir samt greinilega í að Esjuhlíðar verði kjarri og skógi vaxnar upp undir kletta innan nokkurra ára.esjukorti.jpg

 
Velheppnuð sveppatínsla
laugardagur, 05 september 2009

sveppatnsla_fjrar_kynslir_sept_09.jpgHátt á annað hundrað manns komu í Furulund í sveppatínslu í þurru og góðu veðri í dag, tíndu sveppi og nutu góðs af leiðbeiningum Ásu Margrétar Ásgrímsdóttur. Hún sagði ótrúlega margar tegundir sveppa í Heiðmörk og marga vel æta. Líklega er rauðhetta fundin nú í fyrsta sinn hjá okkur, þá er slímgumpur algengasta tegundin þessa dagana.  Á myndinni má sjá fjórar kynslóðir í Furulundi með góðan afrakstur tínslunnar.

 
Sveppatínsla á laugardaginn
þriðjudagur, 01 september 2009
kngssveppur.jpgÁrleg sveppatínsluferð Skógræktarfélags Reykjavíkur verður í Heiðmörk laugardaginn 5. september  kl. 11-13. Leiðbeinandi verður Ása Margrét Ásgrímsdóttir, sveppaáhugakona og höfundur bókarinnar Matsveppir í náttúru Íslands. Ása Margrét leiðir áhugasama um kjörlendi sveppa í Heiðmörk og leiðbeinir við greiningu og tínslu. Áhugasömum náttúruunnendum gefst þarna kjörið tækifæri til að læra grunnatriðin í sveppatínslu. Lagt verður upp frá Furulundinum í Heiðmörk kl. 11 að morgni. Lundurinn er merkur inn á kort af svæðinu, sjá hér:  

http://heidmork.is/kort/heidmork/heidmork_tr.asp

Munið að hafa meðferðis körfur og góða hnífa.
 

 

 
Alaskaöspin í Bláfjöllum
mánudagur, 31 ágúst 2009
alaskasp__blfjllum.jpgÞað er kunnara en frá þurfi að segja að trjágróður dreifir sér nú meira af sjálfsdáðum hér á landi en áður meðal annars vegna minni beitar  og hærri lofthita.  Víða sjást tré í vegköntum og jafnvel þar sem fræuppsprettur eru órafjarri. Þannig háttar til við Bláfjallaveg norðan við  Kóngsgil  í um 400 m hæð yfir sjó. Þar greindi  tíðindamaður heimasíðunnar fyrir skömmu eftirtaldar tegundir við lauslega skoðun: grasvíði, loðvíði,fjallavíði, gulvíði,viðju/viðjublendinga, selju,alaskavíði og alaskaösp. Í syðri vegkanti eru fleiri tré, flest ef ekki öll vaxin upp af fræi. Á myndinni sést um 80 cm há alaskaösp sem vex í hraunmöl  við Bláfjallaveginn, hún hefur kalið en lifir að því er virðist þokkalegu lífi þrátt fyrir það. Sjá einnig: http://vefblod.visir.is/index.php?s=3345&p=79326
 
Einarsmýrin tekin í gegn
miðvikudagur, 26 ágúst 2009
chas_ofl_gst_09.jpgGöngustígurinn um Einarsmýri undir Þverfellshorni í Esju er illa farinn og sumstaðar allt að þrjátíu metra breiður! Í dag hófst lagfæring á stígnum og verður verkið unnið af sjálfboðaliðum  næstu vikurnar undir stjórn Chas Goemans hjá Umhverfisstofnun, en Skógræktarfélagið hefur sem kunnugt er átt mjög gott samstarf um þessi mál við þá stofnun undanfarin ár. Á myndinni sést Chas ásamt tveimur úr hópnum.
 
Styttist í aðalfund landssamtakanna
þriðjudagur, 25 ágúst 2009
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, á Höfn í Hornafirði 28. – 30. ágúst 2009 Haldinn í Nýheimum á Höfn í Hornafirði Föstudagur 28. ágúst 9:30 Afhending fundargagna og kjörbréfa. 10:00 Fundarsetning og ávörp. Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands Elín S. Harðardóttir, formaður Skógræktarfélags A-Skaftfellinga Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar Þröstur Eysteinsson, Skógrækt ríkisins 10:45 Skýrsla stjórnar Skógræktarfélags Íslands. Magnús Gunnarsson og Brynjólfur Jónsson Reikningar Skógræktarfélags Íslands. Brynjólfur Jónsson Skýrsla Landgræðslusjóðs. Guðbrandur Brynjúlfsson Fyrirspurnir um skýrslur stjórna. 11:45 Skipað í nefndir. Tillögur lagðar fram og kynntar. 12:15 Hádegisverður. 14:00 Vettvangsferð frá Nýheimum. Ekið suður á Mýrar að Eskey, gengið upp á Eskey og þaðan rölt yfir í Hellisholt. 16:30 Ekið frá Hellisholti í Haukafell. Brúarvígsla, gönguferð og gleði í Haukafelli.

21:00 Komið til Hafnar.

Laugardagur 29. ágúst 9:30 Fræðsluerindi Ari Þorsteinsson, verkefnisstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands Virkjum sköpunarkraftinn sem í okkur býr Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor Landnám og útbreiðsla birkis á Skeiðarársandi Helgi Björnsson jarðeðlisfræðingur Hlýnun jarðar, hopun jökla Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri þjóðskóga, Skógrækt ríkisins Framtíðarsýn í íslenskri skógrækt Fyrirspurnir og umræður. 11:30 Hádegisverður. 13:00 Nefndarstörf í Nýheimum. 15:30 Skoðunarferð um skóga í nágrenni Hafnar. Hrossabithagi, Hafnarskógur og Einarslundur, þar sem minningarsteinn um Einar Hálfdánarson verður vígður. 20:00 Hátíðarkvöldverður í Mánagarði. Rúta frá Nýheimum kl. 19:30. Fordrykkur í boði umhverfisráðherra. Hátíðardagskrá í boði Skógræktarfélags A-Skaftfellinga. Ávarp umhverfisráðherra og heiðranir. Rúta gengur á hálftíma fresti frá Mánagarði eftir kl 24:00 til gististaða. Sunnudagur 30. ágúst 9:30 Afgreiðsla reikninga. 9:45 Afgreiðsla tillagna. 10:45 Almennar umræður. 11:30 Kosning stjórnar. 12:15 Fundarlok. 13:00 Fyrir þá sem hafa áhuga. Skoðunarferð í Steinadal í Suðursveit. Ekið á eigin bílum í Steinadal, þeir sem ekki komast yfir ána verða ferjaðir yfir á jeppum.

Skoðuð sjálfsáning og útbreiðsla stafafuru og hið beinvaxna steinadalsbirki.

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 61 - 72 af 144
 
Skógræktarfélag Reykjavíkur   Elliðavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770
www.veflausnir.is