Heiðmörk
skrvk-banner-virdiheidmerkur.jpg

Eldiviður

eldividur.jpg
byr_logo.gif
 
 
Barnastund í Rjóðrinu
mánudagur, 07 desember 2009

gs__rjri.jpgÁ hverjum markaðsdegi kl. 14 er Barnastund í Rjóðrinu í grenilundi skammt frá Elliðavatnsbænum. Kveiktur er varðeldur, farið í leiki og stundum kemur jólasveinninn sjálfur  í heimsókn. Þá lesa rithöfundar úr bókum sínum fyrir börnin. Um nýliðna helgi kom Margrét Örnólfsdóttir og las úr Aþenu og Guðmundur Steingrímsson sem las úr Svíninu Pétri, og var þá  meðfylgjandi mynd tekin.

Á neðri myndinn má síðan sjá tvö börn á Hlaðinu nýkomin frá Fjölskyldunni líknarfélagi, sem  heldtv_brn__hlainu_sun_6_des_09.jpgur til á  einum sölubás  með andlitsmálun og blöðrur fyrir þau yngstu.

 

 

 
Svipmyndir frá Jólamarkaðnum um liðna helgi
mánudagur, 07 desember 2009

hlaspjall_sun_6._des_09.jpgMikill fjöldi heimsótti Jólamarkaðinn á  Elliðavatni um helgina og gerði sér glaðan dag í Heiðmörk. Á Hlaðinu er mikið úrval tröpputrjáa um hverja helgi og fara vinsældir þeirra vaxandi. Sumir eru að koma í þriðja sinn og fá sér tröpputré og erum við hjá Skógræktarfélaginu að sjálfsögðu ánægð með það! Þá er jólatrjáasalan hafin af fullum krafti og verður nóg úrval af trjám hjá okkur helgarnar fyrir jól. Síðan byrjar Jólaskógurinn eins og kunnugt er í Hjalladal laugardaginn 12. desember þegar borgarstjóri Reykjavíkur kemur með fjölskyldu  sinni og velur sér tré.

Hér má sjá Júlíus trérennismið sem kemur til okkar í söluskúr alla laugardaga á aðventunni með sína glæsilegu smíðisjlus.jpggripi.

Hrafnhildur hefur tekið ástfóstri við Kjallarann og er allar helgar með sölubás þar og selur ullarhúfur, skartgripi og fleira. Hér má sjá Hrafnhildi á spjalli við viðskiptavin um liðna helgi.hrafnhildur.jpg

 

 
Helgardagskráin
þriðjudagur, 01 desember 2009

harmonikka_08.jpgLaugardagur 5. desember

Klukkan 12.30:  Smárinn -harmonikkuleikur

Klukkan 13.00:  Vilborg Davíðsdóttir les úr Auði

Klukkan 14.00:  Barnastund í Rjóðrinu. Helena Ólafsdóttir með eld og leiki. Margrét Örnólfsdóttir les úr Aþenu.

Klukkan 15.00:  Johnny Stronghands spilar delta-blús

 

Sunnudagur 6. desember

Klukkan 12.30:  Dragspilsdrottningar -harmonikkuleikur 

Klukkan 13.00:  Steinar Bragi les úr Himinninn yfir Þingvöllum

Klukkan 14.00:  Barnastund í Rjóðrinu. Varðeldur og leikir.  Guðmundur Steingrímsson les úr Svíninu Pétri

Klukkan 15.00:  Þorsteinn í Elliðahvammi  fjallar  vítt og breitt um hunang, meðal annars Heiðmerkurhunangið hunang.jpg

 

 

 
Dagskrá helgarinnar
fimmtudagur, 26 nóvember 2009

_neti___hlai_08.jpgJólamarkaðurinn á Elliðavatni opnar um helgina.  Í Gamla salnum verður opin kaffistofa og til sölu margskonar handverk og efni beint úr skóginum.  Á Hlaðinu logar eldur í arni og þar verða jólatré, tröpputré , greinar og eldiviður til sölu. Í söluskúrum og í Kjallaranum er síðan fjölbreytilegt úrval af íslensku handverki. Dagskrá helgarinnar að öðru leyti er sem hér segir:

LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER:

Klukkan 12.30:  Dragspilsdrottningarnar þenjar nikkur sínar fyrir og eftir upplestur. Klukkan 13.00:  Einar Már Guðmundsson les úr Hvítu bókinni. Klukkan 14.00:  Barnastund í Rjóðrinu. Varðeldur og leikir.  Rósa Þorsteinsdóttir les úr bókinni Einu  sinni átti ég gott. Klukkan 15.00:  Jón Guðmundsson flytur fræðsluerindi um trérennismíði og sýnir smíðisgripi sína.

SUNNUDAGUR 29.NÓVEMBER:

Klukkan 12.30:  Harmonikkuleikur fyrir og eftir upplestur: Fönix. Klukkan 13.00:  Þórarinn Eldjarn les úr bók sinni Alltaf sama sagan. Klukkan 14.00:  Barnastund í Rjóðrinu.  Varðeldur og leikir.  Þórarinn Leifsson les úr bókinni Bókasafn ömmu Huldar.  Klukkan 15.00:María Magnúsdóttir spilar nokkur lög af plötunni Not your housewife.

New layer...

New layer...

New layer...

New layer...

  


Lesa meira...
 
Jólamarkaðurinn opnar um næstu helgi!
miðvikudagur, 25 nóvember 2009

elliavatnsbrinn_kvld_08.jpghlai_08.jpgNú er allt að verða tilbúið fyrir Jólamarkaðinn á Elliðavatni  sem opnar á laugardaginn.

Hér má fræðast  um markaðinn en helgardagskráin verður auglýst þegar nær dregur:

http://heidmork.is/index.php?option=com_content&task=view&id=102&Itemid=70

 

 
Nýr Esjubæklingur
föstudagur, 20 nóvember 2009
esjubklingur_1.jpgSkógræktarfélagið hefur gefið út leiðsögubækling um Esjuhlíðar. Í bæklingum eru lýsing á þeim gönguleiðum sem eru greiðfærar og ýtarlegt kort með  fræðsluefni um einstök atriði á hverri leið. Hægt er að nálgast bæklinginn í Esjustofu og öllum helstu upplýsingamiðstöðvum ferðaþjónustunnar  í borginni. 

 

Bæklinginn unnu Bergþóra Einarsdóttir og Svala Hjörleifsdóttir, aðstoð við kortavinnslu veitti Ragnhildur Freysteinsdóttur. 

  
Lesa meira...
 
Jólakransagerð á Elliðavatni 25. nóvember
fimmtudagur, 12 nóvember 2009

kransaugls.jpgJólakransagerð

Lærðu að binda þinn eigin jólakrans á útidyrahurðina eða fyrir aðventuna úr furu og greni, skreytta með könglum, mosa, birki eða öðrum efnum.

Kennari: Auður Árnadóttir blómaskreytir.

 

Staður:  Elliðavatn, Gamli salur.

Stund: Miðvikudagur 25. nóvember klukkan 19-22.     

Efni innifalið en ef þátttakendur vilja koma með eigið efni til að skreyta með er það velkomið. Vinsamlega komið með litlar garðklippur ef þið eigið.

Skráning: hjá Ástu í síma 8448588 eða á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 
Vel heppnuð Freysteinsvaka
þriðjudagur, 10 nóvember 2009
freysteinsvaka-1.jpgfreysteinsvaka-2.jpgFjölmennt var á Freysteinsvökunni 7. nóvember. Á meðfygjandi myndum sem Ragnhildur Freysteinsdóttir tók má sjá Jón Geir Pétursson í pontu og Varsjárbandalagið í ham.
 
Freysteinsvaka
miðvikudagur, 28 október 2009
 freysteinsvaka_plakat_vii_copy.jpg

Skógræktarfélagið heldur  Freysteinsvöku á Elliðavatni laugardaginn 7. nóvember  kl. 13-17. Umfjöllunarefnið verður náttúrufræðingurinn Freysteinn heitinn Sigurðsson og hin fjölbreytilegu áhugamál hans. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Viðtal við Árna Hjartarson um vökuna í Samfélaginu í nærmynd:

http://dagskra.ruv.is/ras1/4485882/2009/11/04/3/

Endurflutt viðtal við Freystein í þætti Steinunnar Harðardóttur Út um græna grundu:

http://dagskra.ruv.is/ras1/4492937/2009/11/07/

 
Næst-hæsta eik landsins
föstudagur, 23 október 2009

eik_ak.jpgBergsveinn Þórsson á Akureyri sendi okkur mynd af 5,35 metra hárri eik ásamt Jóni Hilmari Magnússyni eiganda sínum í garði við Hafnarstræti 63 og teljum við að þarna sé fundin næst-hæsta eik landsins.  Í spjalli við Jón Hilmar kom fram að hann fékk akörn frá Hanover í Þýskalandi sem týnd voru í skógi skammt utan borgarinnar árið 1978, umræddu tré kom Jón Hilmar til í garði sínum með þessum góða árangri. Árið 1992 blómgaðist tréð og aldin mynduðust sem fóru forgörðum í fugla. Þess má geta að Hanover er á svipaðri  breiddargráðu og Mið-England þaðan sem Hallormsstaðaeikin er upprunnin.

 
Viltu selja íslenskt handverk á Jólamarkaðnum?
fimmtudagur, 22 október 2009

jolamarkadur-04.jpgNú styttist í að Jólamarkaðurinn  á Elliðavatni verði opnaður og verið er að leigja söluaðstöðu fyrir framleiðendur á handverki af ýmsum gerðum. Markaðurinn nýtur vaxandi vinsælda og áætlum við að um 10.000 manns hafi heimsótt okkur í fyrra síðustu fjórar helgarnar fyrir jól. http://heidmork.is/index.php?option=com_content&task=view&id=102&Itemid=70

Ef þú vilt slást í hópinn og selja vandað íslenskt handverk hringdu þá sem fyrst í síma 8560058 eða sendu póst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 49 - 60 af 144
 
Skógræktarfélag Reykjavíkur   Elliðavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770
www.veflausnir.is