Heiđmörk
skrvk-banner-virdiheidmerkur.jpg

Eldiviđur

eldividur.jpg
byr_logo.gif
 
 
Tré fyrir tré!
mánudagur, 04 janúar 2010
hjalladalur-minni.jpgNýverið kom tilkynning frá Reykjavíkurborg um að ekki yrði safnað gömlum jólatrjám í borginni á þeirra vegum þetta árið.  Borgin hefur venjulega sinnt þessu eftir áramót en gerir það ekki að þessu sinni.Þar sem gömlu jólatrén fara fremur illa í fjölskyldubílnum er þörf á nýjum lausnum. Til að leysa þetta mál ætla Gámaþjónustan hf og Skógræktarfélag Reykjavíkur að taka höndum saman um söfnun jólatrjáa á Reykjavíkursvæðinu. Við sækjum trén heim til þeirra sem þess óska fyrir  800 krónur. Fyrir hvert jólatré sem Gámaþjónustan safnar, gróðursetur Skógræktarfélag Reykjavíkur eitt jólatré í Heiðmörkinni friðlandi okkar höfuðborgarbúa. Þeim fjölskyldum sem nýta sér þessa lausn verður boðið að koma í Heiðmörkina í vor og taka þátt í gróðursetningu trjánna. Það er mikilvægt að skila aftur til náttúrunnar því sem frá henni er tekið.Þetta er ódýr og auðveld leið til að losa sig við gamla tréð og efla skógræktina  í leiðinni. Gámaþjónustan nýtir gömlu trén í moltugerð sína, en moltan er mjög kraftmikill áburður sem meðal annars nýtist við gróðursetningu trjáplatna. Pöntun á hirðingu þarf að eiga sér stað fyrir 10. janúar á: www.gamar.is og þar eru allar frekari upplýsingar. Hér umfjöllun um málið á stöð 2:  http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=STOD2&programID=b2fab606-e8f9-4500-a4d9-15008d8978da&mediaSourceID=468d0d99-b07e-4a29-8531-b4a66b2de1f7&mediaClipID=e406b32e-025f-4786-8b53-2a1bf520b133
 
Gleđileg jól og farsćlt komandi ár!
miđvikudagur, 23 desember 2009

 
Ódýr eldiviđur og jólatré á Elliđavatni!
mánudagur, 21 desember 2009

jli__hlai.jpgHlaðsalan á Elliðavatni verður opin

fram að jólum frá kl 10-17.

Eldiviður og nýhöggvin jólatré úr skógum

Skógræktarfélagsins á góðu verði!

 
Skyrgámur á Hlađinu
laugardagur, 19 desember 2009

tfrabrg_skyrgms_19_des_09.jpgSkyrgámur mætti  á Hlaðinu og í Barnastundinni í Rjóðrinu í dag. Hér sést hann  sýna  töfrabrögð, sem vöktu mikla athygli barna á staðnum. Á neðri myndinni má sjá viðbrögðin.

Á morgun er síðasti  dagurinn í hinum vinsæla Jólaskógi í Hjalladal og einnig er Jólamarkaðurinn á Elliðavatni opinn í síðasta sinn.

Jólatrjáasalan á Hlaðinu á Elliðavatni verður hinsvegar opin alveg fram að  jólum.vibrg_vi_skyrgmi__hlainu_19_des_09.jpg

 
Allt tilbúiđ í Jólaskóginum í Hjalladal
föstudagur, 18 desember 2009

tilbnir_jlar__hjalladal_08.jpgAllt er nú til reiðu að taka á móti borgarbúum í Jólaskóginum í Heiðmörk í fyrramálið.  Hann verður opinn meðan birtu nýtur um helgina, hægt er fá lánaðar sagir á staðnum og eitt verð er fyrir öll tré, það sama og undanfarin ár: 4.900 krónur/stk. Varðeldur verður kveiktur á staðnum og kakó og piparkökur handa öllum. Jólasveinar til aðstoðar. Útlit er fyrir fyrir kalt og stillt veður og sannkallaða jólastemmningu í Hjalladal.

 
Dagskrá helgarinnar á Jólamarkađnum
föstudagur, 18 desember 2009

huraskellir__rjrinu_13_des_09.jpg

Á myndinni sést ungur maður á spjalli við Hurðaskelli í Rjóðrinu um síðustu helgi.

 

Laugardagur 19. desember:

Kl. 12.30:  Gamli salurinn:  Harmonikkusveitin Fönix.

Kl. 13.00:  Gamli salurinn:  Ritvélin les úr bókinni Hestar eru tvö ár að gleyma.

Kl. 14.00:  Barnastund í Rjóðrinu: Leikir, varðeldur, jólaveinn.  Anna Ingólfsdóttir les úr Mjallhvít.

Kl. 14.45:   Fundasalurinn:  Kristín Arngrímsdóttir les úr Arngrími apaskotti og fiðlunni.

Kl. 15.00:   Fundasalurinn: Timur Zolotusky fræðir gesti um íkona, erindi á ensku.

Sunnudagur 20. desember:

Kl. 12.30:  Gamli salurinn: Harmonikkusveitin Smárinn.

Kl. 13.00:  Gamli salurinn:  Mikael Torfason les úr bókinni Vormenn Íslands.

Kl. 14.00:  Barnastund í Rjóðrinu: Leikir, varðeldur, jólasveinn.  Gerður Kristný les úr Ballinu  á Bessastöðum.

Kl. 15.00:  Gamli salurinn:  Halla Norðfjörð spilar og syngur fyrir gesti

 

 
Mikiđ um ađ vera í Heiđmörk
fimmtudagur, 17 desember 2009
 
rtr__hlainu_13_de_09.jpgJólamarkaður Skógræktarfélags Reykjavíkur á Elliðavatni verður haldinn í síðasta skiptið fyrir jól á Elliðavatni frá 11-17 um næstu helgi. Eins og undanfarnar helgar verður vönduð menningardagskrá í boði fyrir börn og fullorðna auk þess sem úrval af íslenskum hönnuðum og handverksmönnum bætist í hópinn. Á laugardeginum lesa Anna Ingólfsdóttir og Kristín Arngrímsdóttir upp úr bókum sínum ásamt Ritvélinni auk þess sem Timur Zolotusky heldur fyrirlestur um rússneska íkona. Á sunnudeginum munu Mikael Torfason og Gerður Kristný lesa upp úr bókum sínum og að lokum mun Halla Norðfjörð spila og syngja fyrir gesti. 

 

Eins og áður gefst fólki kostur á fá lánaðar sagir og höggva sitt eigið jólatré í skóginum í Hjalladal með aðstoð jólasveina. Varðeldur, kakó og piparkökur  verða á staðnum.Trén eru á sama verði og undanfarin ár, óháð stærð. Einnig verður hægt að velja úr miklu úrvali jólatrjáa á hagstæðu verði á  Hlaðinu við Elliðavatnsbæinn og er þar opið alla daga fram að jólum.

 
Jólatré handa Norđlingaskóla
ţriđjudagur, 15 desember 2009

kak_norl_15_des_09.jpg      Í morgun komu nemendur og kennarar Norðlingaskóla í sinni árlegu ferð til að velja og sækja jólatréð  fyrir skólann. Veðrið var með besta móti eftir ólætin í liðinni viku. Byrjað var  í dagrenningu á kakói og varðeldi í Rjóðrinu, síðan leitað að rétta trénu í Bæjarhólnum, það fellt og flutt niður á plan við Elliðavatnsbæinn.

Á efstu myndinni má sjá nemanda að lokinni kakódrykkju í leit að rétta trénu. Á mið myndinni er tréð flutt með sameiginlegu átaki niður að bænum.niur_bjarhlinn_15_des_09.jpg

 

 

 

       Á neðstu myndinni eru 1. bekkingar að velta sér í brekkunni neðan við bæinn. Í fjarska má sjá Norðlingaholtið.1._bekkur__brekku_norl.skli__15_des_09.jpg

 

 

 
Brokkkórinn á Jólamarkađnum
mánudagur, 14 desember 2009

brokkkrinn_12_des_09.jpgÁ laugardaginn kom hinn vinsæli Brokkkór, sem eins og nafnið bendir til er  kór hestamanna, og söng fyrir gesti í kaffihúsinu í Gamla salnum við mjög góðar undirtektir gesta. Kunnum við kórnum og stjórnanda hans Magnúsi Kjartanssyni bestu þakkir fyrir komuna. Kórsöngurinn er hluti af menningardagskrá Jólamarkaðsins, sem jafn óðum er kynnt hér á heimasíðunni.

 
Mikill mannfjöldi í Heiđmörk um helgina
mánudagur, 14 desember 2009

Um tvö  þúsund manns komu í Jólaskóg Skógræktarfélags Reykjavíkur í Heiðmörk um síðustu helgi, en hann er opinn tvær síðustu helgarnar fyrir jól.

 

hbirna_09.jpgSamkvæmt hefð kom borgarstjóri ásamt fjölskyldu sinni á fyrsta opnunardegi og valdi sér tré þrátt fyrir rok og rigningu þann dag.  Á sunnudeginum var meiri straumur í Heiðmörkina enda veðrið betra, hlýtt og að mestu þurrt og náðu margar fjölskyldur að sækja  sitt eina og sanna jólatré  með aðstoð jólasveina á staðnum. Á eftir fengu allir kakó og piparkökur við varðeldinn í Hjalladal.

 

Margir lögðu einnig leið sína á Jólamarkaðinn á Elliðavatni sem opinn er fjórar helgar fyrir jól. Þar má líta úrval margskonar handverks, auk þess sem menningardagskrá er í gangi alla daga og að sjálfsögðu einnig tröpputré og úrval jólatrjáa úr skógum Skógræktarfélagsins á Hlaðinu við bæinn.

Hér er frásögn á vef Reykjavíkurborgar af ferð Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og fjölskyldu í Hjalladal um helgina:

http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-757/521_read-18040/

 
Jólaskógurinn opnar um nćstu helgi
fimmtudagur, 10 desember 2009

hjalladalur_jli_ofl_08.jpgJólaskógurinn vinsæli í Hjalladal verður opinn næstu tvær helgar klukkan 11-16 eða meðan bjart er. Fólk getur komið, fengið lánaðar sagir og valið tré sem hentar, eitt verð er á trjánum óháð stærð: 4.900 krónur eins og undanfarin ár. Jólasveinar verða til aðstoðar, varðeldur logar, kakó og piparkökur handa öllum. Sannkölluð jólastemmning í Hjalladal!

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri kemur ásamt fjölskyldu og heggur tré í skóginum kl 12.30 laugardaginn  12. desember.

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Síđasta >>

Niđurstöđur 37 - 48 af 144
 
Skógrćktarfélag Reykjavíkur   Elliđavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770
www.veflausnir.is