Heiđmörk
skrvk-banner-virdiheidmerkur.jpg

Eldiviđur

eldividur.jpg
byr_logo.gif
 
 
Einars vaka Ben 1. nóvember kl. 14-18
sunnudagur, 26 október 2008

Smellið á mynd til að stækkaeinarben.jpg
 
Heimilisfrćđikennsla í Rjóđrinu á Elliđavatni
mánudagur, 20 október 2008
img_0910.jpgNú í vetur sækja 9 ára nemendur úr Ísaksskóla  heimilisfræðslu í Fræðslurjóðri Skógræktarfélags Reykjavíkur við Elliðavatn. Börnin koma með kennara sínum Ingibjörgu Ýri Pálmadóttur en hún hefur notið aðstoðar Helenu Óladóttur frá Náttúruskólanum við að setja upp námsefnið. Við fengum að fylgjast með fyrsta tímanum í síðustu viku. Börnin lærðu að kveikja eld og hvernig ætti að umgangast hlóðir og eldstæði. Síðan smurðu þau samlokur og hituðu þær á hlóðunum. Það var líka hitað vatn í katliyfir eldinum og notað í ylvolgt kakó með sykurpúðum. Börnin lærðu auk þess ýmislegt um náttúruna og umhverfið og bjuggu til falleg listaverk úr ýmsu sem á vegi þeirra varð. Þetta smáfólk verður örugglega vel í stakk búið til að bjarga sér í ýmsum aðstæðum þegar það vex úr grasi.img_0916.jpg
Lesa meira...
 
Fyrirlestur um jarđfrćđi Esjunnar
ţriđjudagur, 14 október 2008

Esjan er enn á sínum stað. Komið og kynnist borgarfjallinu frá sjónarhóli jarðfræðinnar. Vissir þú að Esjan er meira en 2 milljón ára gömul?
Fimmtudagskvöldið 16. október heldur Dr. Ingvar Birgir Friðleifsson fyrirlestur um jarðfræði Esjunnar í Gamla salnum á Elliðavatni í Heiðmörk. Erindið hefst klukkan 20 og allir eru velkomnir. Sjá kort hér. esjuhldar.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Útsýnið úr Esjuhlíðum er fagurt

 
Vel heppnuđ Gleđiganga
mánudagur, 13 október 2008

img_1020.jpgSunnudaginn 12. október stóð var farin Gleði- og samstöðuganga frá Elliðavatni undir leiðsögn Kristbjargar Kristmundsdóttur yogakennara og blómadropaframleiðanda. Félagar í  Blómadropafélagi Íslands tóku á móti fólki á Elliðavatni og buðu upp á samtalsmeðferðir og blómadropamixtúrur. Einnig var haldin barnastund í Rjóðrinu við bæinn þar sem kveiktur var eldur og hitað kakó á hlóðum. Soffíía landvörður og Láki slökkviliðsmaður kenndu krökkum og fullorðnum ýmislegt um eldinn og náttúruna í kring um okkur og svo var sungið, trallað og leikið. Yfir hundrað manns mættu og fóru í göngurnar þar sem gerðar voru jógaæfingar á völdum stöðum og hugleitt. Einnig var boðið upp á slökun í Gamla salnum. Allir gáfu vinnu sína þennan dag og fólk lýsti ánægju sinni með framtakið og fór heim með gleði og frið í sinni.

img_1030.jpg

Lesa meira...
 
Lesiđ í skóginn – tálgađ í tré
mánudagur, 06 október 2008

Skógræktarfélag Reykjavíkur á Elliðavatni, Endurmenntunarskólinn og Endurmenntun LbhÍ standa að námskeiðinu. Þátttakendur kynnast tálgunartækni og ferskum viðarnytjum. Hönnun grænna viðarnytja, þurrkun og fullvinnslu smíðisgripa, viðarfræði, skógarvistfræði, skógarhirðu og -grisjun. Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 manns.

Komið og lærið að gera skemmtilegar og gagnlegar jólagjafir í kreppunni.

Kennari: Ólafur Oddsson höfundur bókarinnar Lesið í skóginn – tálgað í tré.
Tími: Fim. 9. okt. Kl. 18:00 – 21:00, lau. 11. okt. Kl. 9:30 – 14:30 og fim. 16. okt. kl. 18:00 – 21:00, alls 17 kennslustundir
Námskeiðsgjald: 15.000 kr.
Staðsetning: Skógræktarfélag Reykjavíkur Elliðavatni í Heiðmörk.
 
Skráning fer fram á www.tskoli.is og nánari upplýsingar fást í s. 514 9000 eða 5641770.

 
Jólaundirbúningurinn er hafinn í Heiđmörk
föstudagur, 03 október 2008
okt_08_-esja_heimrk_013.jpgFyrsti snjórinn féll í Heiðmörk 2. október. Þann dag var haldinn undirbúningsfundur fyrir komandi jólavertíð Skógræktarfélagsins, því ekki er ráð nema í tíma sé tekið. 
Var mikill hugur í starfsfólki félagsins að efla starfsemina og gera  enn betur en undanfarin ár.
Samkvæmt hefð verður fólki gefinn kostur á að sækja sér tré í Jólaskóginn í Hjalladal og einnig verður opinn Jólamarkaður og Hlaðsala á Elliðavatni, en sú nýbreytni þótti takast mjög vel í fyrra. Ýmsar nýjungar eru í skoðun og verða þær kynntar þegar nær  dregur.
Á meðfylgjandi mynd sést yfir Jólaskóginn í Hjalladal og er falleg  vetrarstemmning í Heiðmörk núna, þó enn sé sumar samkvæmt dagatalinu.
 
 
Wiehag leggur hönd á plóg
miđvikudagur, 01 október 2008
wiehag_25_9_-08.jpgSkógræktarfélagið fær af og til óskir frá fyrirtækjum og hópum um
að leggja skógræktinni lið með því að gróðursetja á völdum
stöðum á umráðasvæðum félagsins. 25. september síðastliðinn komu starfsmenn
hins austurríska Wiehag, sem starfar á sviði timburiðnaðar, í hvataferð
hingað til lands og var einn liður í ferðinni að gróðursetja stálpuð tré í
Esjuhlíðum. Ólafur Eggertsson starfsmaður Rannsóknarstöðvarinnar á Mógilsá flutti stutt erindi um sögu skógræktar í landinu og framtíðarhorfur, en að því loknu fékk hver starfsmaður skóflu og gróðursetti furu, greni og reyni í bakka við  Kollafjarðarána norðan við Langamel. Meðfylgjandi mynd var tekin við það tækifæri. Kann félagið Wiehag bestu þakkir fyrir að leggja hönd á plóg við að klæða Esjuhlíðar skógi.
 
Skógrćkt međ skólum gengur vel
fimmtudagur, 25 september 2008
8__bekkur_25__sept_-langholtsskli.jpgÁ þriðja hundrað nemenda og kennara  úr grunnskólum borgarinnar hafa komið í Esjuhlíðar undanfarnar vikur
til  að taka þátt í verkefninu "Skógrækt með skólum". Nóg er eftir af birkifræi í skóginum ofan við bílastæðið við Kollafjörð og nóg er af hálfgrónu landi ofar í hlíðum fjallsins þar sem dreifa  má fræinu. Ef allt fer að óskum gætu þúsundir birkitrjáa lítið dagsins ljós á næstu árum
í hinum snauðu og vindbörðu hlíðum Esjunnar fyrir ofan Mógilsá. Jafnframt myndast þarna ómetanlegur fræbanki birkisins.
 
Á myndinni sést vaskur hópur 8. bekkinga úr Langholtsskóla sem lagði Skógræktarfélaginu lið þann 25. september. Þau eru í huldufólksbyggðum á Kögunarhóli að lokinni frædreifingu, í fjarska sést yfir sundin og ekki blaktir hár á höfði.
 
Esjugöngumađurinn mikli
ţriđjudagur, 16 september 2008
helgi_orkels__sept_08.jpg
Helgi Þorkelsson gengur tvisvar í viku á sumrin á Esjuna, frá Kollafirði upp á Þverfellshorn, sama hvernig viðrar nema helst ekki í slagviðri.
Svona hefur hann haft það í áraraðir og telur hann Esjugöngurnar vera mikla líkamsrækt. Á veturna gengur hann að jafnaði einu sinni í viku, yfirleitt upp á topp, stundum þó að Steininum þegar svell er í klettunum fyrir ofan. Hitti hann ekki þeim mun fleira fólk til að spjalla við er hann um það bil eina klukkustund á leiðinni upp. Það er líkamsræktin og jákvæðir fjallgöngumenn sem hvetja Helga til að koma aftur og aftur í sína göngu. Þá er vellíðanin mikil að lokinni göngu og jafnast fátt á við kaffisopa í bílnum þegar niður er komið.
 
Skógurinn lađar til sín fágćta fugla
föstudagur, 12 september 2008
barrfinka01bt.jpg
Haustið er farið að setja mark sitt á fuglalífið í Heiðmörk. Mófuglakliðurinn er þagnaður, lóan og spóinn horfin, aðeins einn og einn hrossagaukur enn viðlátinn en lætur lítið á sér bera. En skógarfuglarnir eru ekki farnir, þvert á móti. Stórir hópar skógarþrasta sækja í reyniberin, og iðka sönglistina í leiðinni. Þetta eru ungir fuglar að æfa sig fyrir næsta vor. Nokkrir svartþrestir halda einnig til í Heiðmörk. Músarrindlar eru enn á sveimi og tína síðustu skordýrin. Auðnutittlingar maula birkifræin og í slagtogi með þeim eru nýlegir landnemar, barrfinkur.  Ef lagt er við hlustir má heyra ofurmjótt tíst glókollsins ofan úr grenitrjánum og sé veðrið gott brestur hann jafnvel í söng. 
glokollur06bt.jpg
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér að ofan er mynd af Barrfinku og til hliðar er Glókollur. Neðar má sjá Krossnef, Svartþröst og Auðnutittling.
Lesa meira...
 
Áskorun til borgarbúa
föstudagur, 12 september 2008
Skógræktarfélagið tekur á móti birkifræi og reyniberjum á Elliðavatni í Heiðmörk. Munu starfsmenn félagsins dreifa þeim í Esjuhlíðar  við fyrsta tækifæri eftir að þau berast. Fræframleiðsla er mikil á þessu ári og upplagt að nota tækifærið og safna fræi í borgarlandinu og stuðla þannig að stækkun skóga  í Esjunni.

Nánari upplýsingar veitir Kristján Bjarnason s. 8560058

 
<< Byrja < Fyrri 11 12 Nćsta > Síđasta >>

Niđurstöđur 133 - 144 af 144
 
Skógrćktarfélag Reykjavíkur   Elliđavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770
www.veflausnir.is