Heiðmörk
skrvk-banner-virdiheidmerkur.jpg

Eldiviður

eldividur.jpg
byr_logo.gif
 
 
Gunnarshátíð á sunnudaginn
mánudagur, 21 júní 2010
gf.jpgGunnarshátíð í Haukadal Í tilefni þess að Gunnar Freysteinsson skógfræðingur hefði orðið fertugur í ár boða Skógfræðingafélag Íslands og vinir og vandamenn til Gunnarshátíðar í Haukadal sunnudaginn 27. júní, en Gunnar lést af slysförum árið 1998. Allir velkomnir. Dagskrá:Kl. 11:00 Vinna og skemmtunSafnast saman. Gróðursetning og umhirða í Gunnarslundi. Kl. 13:00 Bara skemmtun Setning og ávarp: Aðalsteinn Sigurgeirsson, formaður Skógfræðingafélags Íslands. Hugvekja sjera Sigvalda Ásgeirssonar skógarprests Skógarleikar (fyrir alla aldurshópa) Samkomuslit: Ragnhildur Freysteinsdóttir Tónlist:                        Nikulás Magnússon, harmonikka.                        Jón Ásgeir Jónsson, gítar. Gestir eru beðnir um að hafa með sér trjá/greinaklippur, skóflur og fötur, sem og það nesti sem þeir vilja, en ketilkaffi verður á hlóðum á staðnum. -Allir eru hvattir til að hafa með sér trjáplöntu, helst af fágætri tegund, hvort sem er barr-eða lauftré.  Fyrir þá sem ekki dunda sér við ræktun á slíku heima hjá sér má benda á Gróðrarstöðina Nátthaga í Ölfusi, þar sem finna má ýmsar áhugaverðar tegundir. Ef keypt er planta þar endilega láta skrá þar að þetta sé fyrir Gunnarshátíð, þar sem það auðveldar allar merkingar á trjánum síðar meir að hafa allar tilhlýðilegar upplýsingar frá gróðrarstöðinni, auk þess sem það tryggir 10% afslátt. Gróðrarstöðin opnar kl. 9 á sunnudagsmorgninum.
 
Heiðmörk 60 ára -Afmælisvika-
mánudagur, 07 júní 2010

Hér fylgir dagskrá afmælisvikunnar, en hún verður nánar auglýst þegar nær dregur:

  auglsing_vikudagskr__rtt.jpg

 
Þrastarlundur í Heiðmörk
mánudagur, 07 júní 2010
2010_06_06_heidmork_019_-rastarlundur-.jpgSkógræktarfélag Reykjavíkur færði Þresti Ólafssyni  formanni tré að gjöf  í tilefni  70 ára afmælis hans og  voru trén gróðursett  í "Þrastarlund" við Vatnsveituveg þann 6. júní síðastliðinn. Mætti þá stjórn félagsins ásamt fjölskyldum sínum og gróðursettu í sameiningu. 
 
Vorleysingar í Esjunni
fimmtudagur, 27 maí 2010
Lesa meira...
 
Ársskýrslan fyrir 2009
fimmtudagur, 27 maí 2010
http://heidmork.is/images/arsskyrlsa2009.doc
 
Viðtalið við skógarvörðinn í Heiðmörk
mánudagur, 17 maí 2010

Hér fylgir skemmtilegt viðtal við Óla finnska skógarvörð í Heiðmörk sem spilað var á Rás 1 fyrir skömmu:

http://dagskra.ruv.is/ras1/4490637/2010/05/11/

 
Vormarkaðurinn opinn alla helgina kl 10-17
fimmtudagur, 06 maí 2010

Dagskrá næstu helgar er tíunduð nákvæmlega hér fyrir neðan á þessari síðu.

Laugardagur  8. 5. og

Sunnudagur  9.5.      

-Bæði Viðburðir og Sala-   

    

Sjá líka Skógræktarfélag Reykjavíkur á fésbók.

 
Vormarkaður -viðburðir- sunnudag 9. maí
fimmtudagur, 06 maí 2010
vormarkaur__elliavatni_9__ma_-viburir-.jpg
 
Vormarkaður -sala- sunnudag 9. maí
fimmtudagur, 06 maí 2010
vorm_sala_-_9_ma.jpg
 
Alþjóðlegi farfugladagurinn og vormarkaðurinn
fimmtudagur, 06 maí 2010
Laugardaginn 8. maí næstkomandi mun Fuglavernd halda upp á alþjóðlega farfugladaginn með því að bjóða upp á fuglaskoðun við Elliðavatn. Lagt verður af stað frá Elliðavatnsbæ stundvíslega klukkan 14:00 og munu þeir Edward Rickson og Jakob Sigurðsson leiða gönguna. Gaman er að taka sjónauka með en veðurstofan spáir góðu skyggni og stilltu veðri. Flestir íslenskir fuglar eru farfuglar og koma hingað að verpa og ala upp unga sína. Að þessum degi standa alþjóða samningurinn um flökkutegundir og samningur um votlendisfugla Evrópu, Asíu og Afríku. Félög á sviði náttúru-og fuglaverndar taka sig saman um að halda upp á daginn með ýmsum uppákomum um allan heim og vilja þar með minna á að fuglar eigi sér engin landamæri og að alþjóðlegt samstarf sé nauðsynlegt til að tryggja tilvist farfuglanna. Á ári líffræðilegrar fjölbreytni bendum við á að farfuglarnir eru ágætis vísar á að vistkerfi landsins sé heilbrigt. Ef þeir þrífast þá eru meiri líkur á að mannfólkið þrífist. Hér á Íslandi verpir 75% Evrópustofns spóa, 75-80% álku, 60% stofns heiðlóu og 60-70% stofns kríu þannig að Ísland er langmikilvægasta einstaka varpsvæði margra fuglategunda í heiminum og hefur skyldum að gegna við að vernda varpsvæðin þeirra. Fuglavernd mun kynna félagið á vormarkaði Skógræktarfélags Reykjavíkur um helgina og vera með varning til sölu sem tengist fuglum. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu okkar www.fuglavernd.is.
Meðfylgjandi er falleg mynd af himbrima og þó að þessi mynd hafi verið tekin á Þingvallavatni þá eru líkur á að hægt sé að sjá himbrima á Elliðavatni.  Ljósmyndari Jakob Sigurðsson.himbrimi_jakob_sigurdsson.jpg
 
Vormarkaður -viðburðir- laugardag 8. maí
miðvikudagur, 05 maí 2010
vormarkaur__elliavatni_8__ma_viburir_-leirtt.jpg 
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 13 - 24 af 144
 
Skógræktarfélag Reykjavíkur   Elliðavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770
www.veflausnir.is