Heiðmörk
skrvk-banner-virdiheidmerkur.jpg

Eldiviður

eldividur.jpg
byr_logo.gif
 
 
Dvergschnauzer í jólapeysu á Jólamarkaðnum
mánudagur, 13 desember 2010

Algengt er að hundaeigendur mæti á Jólamarkaðinn  og eru þeir velkomnir með hunda sína -í taumi. Um helgina kom til dæmis fjölskylda með lágvaxna, gæfa tík að nafni Dimma til okkar og var hún klædd jólapeysu. Reyndist þetta vera nokkuð sjaldgæf tegund sem kallast dvergschnauzer.dimma__markai_11_12_2010.jpg

 
Þrjár góðar á Jólamarkaðnum um helgina
mánudagur, 13 desember 2010

Unnur á harmonikku, Fanný með kynningarmálin og Elínborg á kaffistofunni. 11_12_2010_markaur_rjr_gar.jpg

 
Stúfur heimsækir hestaleiguna á Jólamarkaðnum
sunnudagur, 12 desember 2010
11_12_2010_stufur_heimskir_hestaleiguna.jpgStúfur heimsótti hina vinsælu hestaleigu fyrirtækisins Íslenski hesturinn um helgina, en þau halda til í hestagerði í túninu skammt frá Jólamarkaðnum.
 
Borgarstjórinn opnaði Jólaskóginn í Hjalladal í dag
laugardagur, 11 desember 2010
Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur  og fjölskylda   leituði -og fundu-  sitt jólatré í dag í Hjalladal í Heiðmörk. Þar  var opnaður Jólaskógur og verður nú opinn tvær helgar fram að jólum klukkan 10-16.ok_hjalladalur_11_12_2010_gnarr_finnur_tr.jpg  
 
Mikið um að vera hjá Skógræktarfélaginu um helgina!
fimmtudagur, 09 desember 2010

hjalladalur_jli_ofl_08.jpgÞað er óhætt að segja að mikið sé um að vera hjá Skógræktarfélaginu á næstunni. Nú styttist í jólin og félagið verður með jólatrjáasölu á þremur stöðum:

1. Jólatrjáasalan í Kauptúni Garðabæ opnar 10. desember.   Þetta er í Kauptúni 3 við hliðina á Bónusi nálægt Ikea og er það í fyrsta sinn sem félagið er með söluaðstöðu þar. Þar gefst fólki kostur á að versla úrvals, nýhöggvin, íslensk tré á góðu verði. Einnig eru til sölu hin vinsælu tröpputré og eldiviður úr Heiðmörk. Opnunartími er virka daga klukkan 15-21 og 10-21 um helgar fram að jólum. 

 

2. Jólaskógurinn í Hjalladal Heiðmörk opnar síðan laugardag 11. desember. Hjá mörgum fjölskyldum er það orðin hefð að velja sjálf sitt jólatré í Hjalladal og njóta útiveru og jólastemningar í Heiðmörkinni.  Skógarvörðurinn  útvegar sagir og allir fá kakó og piparkökur, varðeldur er tendraður og jólasveinarnir mæta á svæðið. Auk þessa verða nú nýhöggvin tré til sölu á staðnum, tröpputré og eldiviður. Borgarstjórinn í Reykjavík mætir ásamt fjölskyldu sinni klukkan 11 þann 11. desember og opnar Jólaskóginn. Opnunartími er klukkan 11-16 tvær helgar fyrir jól.

 

3. Jólamarkaðurinn Elliðavatni Heiðmörk verður síðan opinn þriðju helgina í röð. Þar verður jólatjáasala eins og fyrri helgar og einnig mikið úrval tröpputjáa og eldiviður í stöflum. Fjöldi handverksfólks býður fram vörur sínar, hestaleiga verður í gangi og fjölbreytt menningardagskrá, eins og sjá má hér neðar á síðunni. Opnunartími er klukkan 11-17 fjórar helgar fyrir jól.

 

Hlaðið: Miðsvæði Jólamarkaðarins umlukið jólahúsum á aðra hönd og bænum á Elliðavatni á hina. Þar selur Skógræktarfélagið jólatré, tröpputré og eldivið og eldur logar þar í útiarni.

Gamli salurinn: Á efri hæðinni eru myndir til sýnis á veggjum og rekin kaffistofa með alvöru kakói, vöfflum og flatkökum. Á neðri hæðinni er til sýnis og sölu margskonar íslenskt handverk.

Kjallarinn:  Í skrifstofuhúsinu á Elliðavatni þar sem Skógræktarfélagið hefur bækistöð sína. Í  Kjallaranum heldur Sirrý spákona til.  Auk þess eru þar sölu- og kynningarborð fyrir góðgerðafélög og fjölda handverksmanna.

Rjóðrið: Rjóður í greniskógi  í um 100 metra fjarlægð frá bænum á Elliðavatni. Þar er kveiktur varðeldur og haldin Barnastund kl 14 hvern markaðsdag. Jólasveinar koma i heimsókn.

 

 
Dagskrá Jólamarkaðarins um næstu helgi
miðvikudagur, 08 desember 2010

Þriðja  helgi Jólamarkaðarins á Elliðavatni er framundan og verður mikið um að vera eins og áður, öll söluborð pöntuð og fjölbreytt íslenskt handverk í boði. Við vekjum athygli á að engar tvær helgar eru eins, því sölufólk kemur og fer og stoppar mislengi við. Áhugasamir geta nálgast upplýsingar um handverksfólkið á skrifstofu félagsins og hjá umsjónarmanni með netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Laugardagur 11. desember:

Klukkan 11-17: Opnunartími.

Klukkan 13-15: Hestaleiga. Teymt undir börnum í túninu neðan við bæinn.

Klukkan 13-15. Jólasveinn heilsar upp á fólkið.

Klukkan 13 í Gamla sal: Óskar Hrafn Þorvaldsson les úr bók sinni Martröð millanna.

Klukkan 14 í Rjóðrinu: Barnastund og varðeldur. Kristín Arngrímsdóttir les úr  bókinni Arngrímur apaskott og hrafninn.

Klukkan 15 í Gamla sal: Harmonikkuleikur. Fönix þenur nikkurnar.

Klukkan 16 í Gamla sal: L7: Hrafnar, sóleyjar og myrra. Eyrún Ósk Jónsdóttir og Helgi Sverrisson kynna  nýútkomna bók og væntanlega kvikmynd í máli og myndum.

 

 

Sunnudagur 12. desember:

Klukkan 11-17: Opnunartími.

Klukkan 13-15: Hestaleiga. Teymt undir börnum í túninu neðan við bæinn.

Klukkan 13-15: Jólasveinn heilsar upp á fólkið.

Klukkan 13 í Gamla sal: Þorgrímur Gestsson les úr bókinni  Mannlíf við Sund-býlið, byggðin, borgin.

Klukkan 14 í Rjóðrinu: Barnastund og varðeldur. Anna Ingólfsdóttir les úr bókinni Þyngdaraflið.

Klukkan 15 í Gamla sal: Harmonikkuleikur. Dragspilsdrottningarnar.

 
Sigurður og Drottningarnar
mánudagur, 06 desember 2010
2._helgi_012.jpgHér sést harmonikkusveitin Sigurður og Drottningarnar  spila í Gamla salnum um liðna helgi. Með harmonikkuleikurunum kemur, að margra mati, hin eina sanna jólastemmning á markaðinn. Þeir leika fyrir gesti alla markaðsdaga fram að jólum.
 
Dagskrá sunnudagsins á Jólamarkaðnum
laugardagur, 04 desember 2010

Sunnudagur 5. desember:

Opið klukkan 11-17.

Hestaleiga. Teymt undir börnum á túninu neðan við bæinn kl 13-15.

Klukkan  13 í Gamla sal:  Einar Kárason les úr bókinni Mér er skemmt.

Klukkan 14 í Rjóðrinu: Barnastund. Varðeldur og upplestur. Hendrikka Waage les úr Rikku og töfrahringnum á Indlandi.

Klukkan 15 í Gamla sal: Harmonikkuleikur. Sigurður og Drottningarnar.

Klukkan 16 í Gamla sal: Trúbador. Svavar Knútur spilar og syngur fyrir gesti.

------------------------------------------------------------------------2._helgi_10_-gamli_salur.jpg--------------------- 

Gamli salurinn: Á efri hæðinni eru myndir til sýnis á veggjum og rekin kaffistofa með alvöru kakói, vöfflum og flatkökum. Á neðri hæðinni er til sýnis og sölu margskonar íslenskt handverk.

Hlaðið: Miðsvæði Jólamarkaðarins umlukið jólahúsum á aðra hönd og bænum á Elliðavatni á hina. Þar selur Skógræktarfélagið jólatré, tröpputré og eldivið og eldur logar þar í útiarni.

Kjallarinn:  Í skrifstofuhúsinu á Elliðavatni þar sem Skógræktarfélagið hefur bækistöð sína. í Kjallaranum heldur Sirrý spákona til.  Auk þess eru þar sölu- og kynningarborð fyrir góðgerðafélög og fjölda handverksmanna.

Rjóðrið: Rjóður í greniskógi  í um 100 metra fjarlægð frá bænum á Elliðavatni. Þar er kveiktur varðeldur og haldin Barnastund kl 14 hvern markaðsdag.

 

 
Mikið fjölmenni og þrír hestar við Elliðavatn
laugardagur, 04 desember 2010

2._helgi_10_-hestateyming.jpg

 

 

 

 

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------- 

Mikið fjölmenni var á Jólamarkaðnum  Elliðavatni í dag í fyrsta flokks vetrarveðri, björtu, stilltu og köldu. Nokkrir hundar komu í heimsókn með eigendum sínum og þrír hestar voru í hestaleigunni sem er í túninu skammt frá bænum. Hestagerðið er við hliðina á Rjóðrinu í uþb. 100 metra fjarlægð frá bílastæðinu við bæinn á Elliðavatni.

Í Rjóðrinu  er kveiktur varðeldur daglega og þar lesa rithöfundar upp úr nýjum bókum sínum í Barnastund og einnig koma jólasveinar í heimsókn þegar nær dregur jólum.

 

 
Dagskrá helgarinnar 4.-5. desember
föstudagur, 03 desember 2010
Um helgina verður fjölbreytt menningardagskrá á Jólamarkaðnum. Á fjórða tug hönnuða og handverksfólks selja hágæða vörur. Íslensk jólatré til sölu og hin vinsælu tröpputré. Tónlistarfólkið í rokna stuði, barnastund við varðeldinn í Rjóðrinu. Rithöfundar lesa úr verkum sínum og svo verða menn að bregða sé á bak á skógarhestunum! Umfram allt komið og njótið stórbrotinnar náttúrufegurðar við Elliðavatn. Nánari dagskrá hér:
___________________________________________________
Laugardagur 4. desember:

Opið klukkan 11-17.

Hestaleiga. Teymt undir börnum á túninu neðan við bæinn kl. 13-15.

Kukkan 13 í Gamla sal: Steinunn Jóhannesdóttir les úr Heimanfylgju.

Klukkan 14 í Rjóðrinu: Barnastund. Varðeldur og upplestur. Áslaug Jónsdóttir les úr Skrímsli á toppnum.

Klukkan 15: í Gamla sal: Harmonikkuleikur.  Sigurður og Drottningarnar.

 

Sunnudagur 5. desember:

Opið klukkan 11-17.

Hestaleiga. Teymt undir börnum á túninu neðan við bæinn kl 13-15.

Klukkan  13 í Gamla sal:  Einar Kárason les úr bókinni Mér er skemmt.

Klukkan 14 í Rjóðrinu: Barnastund. Varðeldur og upplestur. Hendrikka Waage les úr Rikku og töfrahringnum á Indlandi.

Klukkan 15 í Gamla sal: Harmonikkuleikur. Sigurður og Drottningarnar.

Klukkan 16 í Gamla sal: Trúbador. Svavar Knútur spilar og syngur fyrir gesti.

 

 
Upplestur í Rjóðrinu
miðvikudagur, 01 desember 2010
Þórarinn Eldjárn las úr bók sinni og Sigrúnar Eldjárn: Árstíðirnar  í Barnastund í Rjóðrinu um síðustu helgi.rarinn_eld__1._helgi_2010_011.jpg
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 109 - 120 af 275
 
Skógræktarfélag Reykjavíkur   Elliðavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770
www.veflausnir.is