Heiðmörk
skrvk-banner-virdiheidmerkur.jpg

Eldiviður

eldividur.jpg
byr_logo.gif
 
 
Áningarstaðir

 

Helluvatn

Á áningarstaðnum við Helluvatn er grillaðstaða undir þaki, bílastæði.


Vígsluflöt – Rariklundur

Heiðmörk var stofnuð formlega 25. júní 1950 á Vígsluflöt. Á vígsluhátíðinni gróðursetti þáverandi borgarstjóri Gunnar Thoroddsen sitkagreniplöntu sem í dag er myndarlegt tré. Á 50 ára afmæli Heiðmerkur gróðursetti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þáverandi borgarstjóri ilmreyni á Vígsluflöt. Á Vígsluflöt eru grill, borð og bekkir, bílastæði. Svæðið getur rúmað um 70 – 100 manns.


Símamannalaut

Símamannalaut er afrakstur kraftmikils landnemastarfs en Félag íslenskra símamanna hóf gróðursetningu þar strax eftir friðun Heiðmerkur árið 1950. Í Símamannalaut eru grill,borð og bekkir og bílastæði. Svæðið hentar vel fyrir hópa upp að 40 manns.

Furulundur - Dropinn


Furulundur var gerður árið 2000 í tengslum við að Reykjavík var kjörin Menningarborg Evrópu. Þetta er fjölskyldulundur búinn leiktækjum, blakvelli og grillaðstöðu. Þar eru líka bílastæði. Inn af Furulundi er Dropinn, áningarstaður með grilli, borðum og bekkjum.


Grenilundur

Grenilundur er fjölskyldurjóður frá 2005. Þar er grillaðstaða, bílastæði, leik- og klifurtæki. Grenilundur rúmar um 50 manns.


Þjóðhátíðarlundur

Skógræktarfélag Reykjavíkur stofnaði Þjóðhátíðarlund árið 1974 til að minnast 1100 áraafmælis Íslandsbyggðar og jafnframt 75 ára afmælis skógræktar á Íslandi.Þjóðhátíðarlundur er í Löngubrekkum og skammt frá eru Hulduklettar. Í Þjóðhátíðarlundi er grill, borð og bekkir, bílastæði, leiktæki og fótboltavöllur. Svæðið hentar vel fyrir stærri hópa eða 70 – 100 manns.


Vífilsstaðahlíð

Árið 1958 varð Vífilsstaðahlíðhluti af Heiðmörk eftir samninga milli Skógræktarfélags Reykjavíkur og stjórnar ríkisspítalanna. Þá var strax hafist handa við gróðursetningu þar. Í Vífilsstaðahlíð er einnig að finna trjásafn sem SkógræktarfélagReykjavíkur byrjaði að gróðursetja árið 1990. Í Vífilsstaðahlíð er yfirbyggt grill og bílastæði.

Hjallaflatir

Hjallaflatir eru stærsti áningarstaður Heiðmerkur. Þar geta komið saman meira en 300 manns. Þar er fótboltavöllur, grillaðstaða. Á Hjallaflötum er eina tjaldstæði Heiðmerkur.


Fræðslurjóður

Fræðslurjóðrin eru austan við Elliðavatnsbæinn. Í fræðslurjóðrunum fer fram náttúru- og umhverfiskennsla fyrir börn og unglinga.


Smelltu hér til þess að sjá kort af áningarstöðunum í Heiðmörk

 

Allir eru velkomnir í Heiðmörk jafnt einstaklingar sem hópar til að njóta útiveru í sátt við náttúru og umhverfi. 

  

 

 
    
 
Skógræktarfélag Reykjavíkur   Elliðavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770

 

 
 
Skógræktarfélag Reykjavíkur   Elliðavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770
www.veflausnir.is