Heiđmörk
skrvk-banner-virdiheidmerkur.jpg

Eldiviđur

eldividur.jpg
byr_logo.gif
 
 
Jólaskógur
_mg_3482.jpgJólaskógurinn í Heiðmörk.Það er orðin sterk hefð í mörgum fjölskyldum að koma í Heiðmörk á aðventunni og höggva sitt eigið jólatré. Í ár verður opið í Hjalladal í Heiðmörk helgarnar 12.-13. desember og 19.-20. desember klukkan 11 - 16.
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri mun höggva tré  í Jólaskóginum laugardaginn 12. desember klukkan 12.30. Alla daga verður líf og fjör, jólasveinarnir verða á staðnum og það verður logandi varðeldur. Það er boðið uppá heitt kakó og piparkökur og jólalögin sungin. Sagir og klippur verða  til útláns fyrir skógarhöggið. Það er sannkölluð jólastemning í skóginum!

Íslensk jólatré eru vistvæn. Þau eru ræktuð án eiturefna og eru ekki flutt á milli landa. Í staðinn fyrir hvert tré sem höggvið er gróðursetur Skógræktarfélag Reykjavíkur að minnsta kosti fimmtíu tré.

Það er sama góða verðið á jólatrjánum í Jólaskóginum og í fyrra, 4900 krónur - óháð stærð. Í boði er úrvals íslensk stafafura, barrheldin og vel ilmandi.

Leiðin er vel merkt, bæði frá innkomuleiðinni við Rauðhóla og Vífilsstaðahlíð. Einnig er hægt að sjá leiðbeiningar og kort á heimasíðunni heidmork.is.

Félagsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur fá 500 krónur í afslátt.
_mg_3488.jpg
 
 
Skógrćktarfélag Reykjavíkur   Elliđavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770
www.veflausnir.is