Heiðmörk
skrvk-banner-virdiheidmerkur.jpg

Eldiviður

eldividur.jpg
byr_logo.gif
 
 
Jólamarkaður 2009

image003.jpg

 

Jólamarkaðurinn vinsæli á Elliðavatni opnar laugardaginn 28. nóvember og verður opinn allar helgar fram að jólum klukkan 11-17. Að þessu sinni verður jólamarkaðurinn enn stærri og veglegri en í fyrra. Aukinn kraftur er settur í Hlaðsöluna og söluskúrum fjölgað, þar sem fjölbreytt úrval af íslensku handverki verður til sölu.  Á Hlaðinu verða til sölu nýhöggvin íslensk jólatré á sama verði og í fyrra. Þar að auki  mikið úrval af tröpputrjánum vinsælu.

Á hverjum markaðsdegi er kveikt upp í eldstæðinu Hlaðinu og rithöfundur les úr nýútkominni bók sinni  kl. 13 og harmónikkusveitir leika nokkur lög. Auk harmonikkusveita hefur kór boðað komu sína auk þess sem trúbadorar  mæta með gítarinn.  Stutt fræðsluerindi verða flutt um áhugaverð efni  eins og  hunangsframleiðslu og trérennismíði. 

 Gamli salurinn

Í Gamla salnum verður  handverksfólk með vörur sínar og að sjálfsögðu  boðið uppá ilmandi nýbakaðar vöfflur og kakó. Þær Auður og Ásta verða með  ýmis konar handunnar jólaskreytingar úr efniviði skógarins. Til sölu er einnig eldiviður, könglar, trésneiðar, furugreinar, barrnálar, trédrumbar, börkur og mosi – allt nýtist þetta í fallega hurðarkransa, borðskraut, innpökkunarefni eða jólatrésskraut.

Rjóðrið

Rjóðrið er trjálundur rétt við Elliðavatnsbæinn þar sem hægt er að setjast á bekki kringum logandi varðeld.

Barnastundin verður þar  klukkan 14 og þá kemur barnabókahöfundur og les upp fyrir börnin og auk þess verður farið í náttúruleiki.
Jólasveinar koma í heimsókn þegar nær dregur jólum og heilsa upp á börn og fullorðna.



Jólamarkaðurinn á Elliðavatni er dásamlegaur staður til að flýja ys og þys borgarinnar um stund og finna réttu jólastemninguna í friðsælu og fallegu umhverfi. Munið – það tekur aðeins 15 mínútur að aka frá miðbæ Reykjavíkur að Elliðavatnsbænum í Heiðmörk.

ATH!

ERUM AÐ BÓKA SÖLUBORÐ FYRIR KOMANDI MARKAÐ 2009!

ÁHUGASAMIR VINSAMLEGA HAFI SAMBAND VIÐ FÉLAGIÐ SEM FYRST!

 

image003.jpg

 
 
Skógræktarfélag Reykjavíkur   Elliðavatni, 110 Reykjavík - Sími 564 1770
www.veflausnir.is