Fréttir

Fréttir af aðalfundinum 13. apríl 2011

heimas_11_4_11_004

Fjölmennt var á aðalfundi Skógræktarfélags Reykjavíkur í gærkvöldi. Á fundinum flutti formaður ræðu, skýrslu stjórnar -og verður hún birt innan skamms hér á síðunni. Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir starfsemi félagsins.  Endurskoðandi gerði grein fyrir reikningum. Þá voru þrír nýir stjórnarmenn kosnir til setu í stjórn félagsins, þau Gunnlaugur Claessen, Sigurður G. Tómasson og Kristín Eiríksdóttir.

 

 

Í lok fundar var síðan eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða:

 

Aðalfundur Skógræktarfélags Reykjavíkur haldinn í Háskóla Íslands þann 13. apríl 2011 samþykkir að skora á borgaryfirvöld að endurnýja strax samning við Skógræktarfélag Reykjavíkur um rekstur og umsjón Heiðmerkur. Síðastliðin sjö ár hefur félagið reynt að fá samninginn endurnýjaðan með góðum vilja ýmissa meirihluta borgarstjórnar, en aldrei hefur tekist að ljúka þeim samningum.  Því er nú skorað á borgarstjórn að ganga  í þetta verk með Skógræktarfélaginu og ljúka því hið fyrsta.   Í mörg ár hefur verið halli á rekstri Heiðmerkur sem skýrist af lækkandi framlögum borgarinnar til rekstursins, jafnframt því að fjöldinn sem nýtir svæðið til útivistar hefur stóraukist. Þessum halla hefur verið velt yfir á Skógræktarfélagið. Á þessu verður að finna viðhlítandi lausn til lengri tíma, sem báðir samningsaðilar geta vel við unað.